VERÐBÆTUR: Bylmingshögg á báða vanga

Það var í göfugum tilgangi að tekin var upp verðtrygging með Ólafslögum fyrir fyrir tæpum þrjátíu árum. Það var til að verja bæði sparifé og útlán fyrir rýrnun vegna verðbólgu. Settur var plástur á afleiðingarnar þegar ekki gekk að kveða niður drauginn. Það var gert meira en áratug síðar með þjóðarsáttinni 1991.

Í millitíðinni varð "misgengið" til, þegar hætt var að verðtryggja laun en ekki lán. Þá voru sett lög um greiðslujöfnun 1985, sem voru síðan uppfærð núna 17. nóvember. Inn í þau var bætt "greiðslujöfnunarvísitölu" (já 9 atvkæða orð) til að mæta misgenginu hinu nýja. Nú erum við með Nýja banka og nýtt misgengi á Nýja Íslandi.

Nýja misgengið er vegna loftbólu sem belgdi út bæði krónuna og fasteignaverð. Þessi bóla varð ekki til af sjálfu sér heldur var hún manngerð. Nú er hún sprungin og hvoru tveggja gengur til baka. Þá fá íbúðarkaupendur bylmingshögg á báða vanga þegar verðið fer niður en skuldirnar upp.

Auðvitað þarf að aðstoða fólk sem verður fyrir barðinu á hinu nýja misgengi. Það er ekki forsvaranlegt að fjöldi fólks missi eignir sínar. Margir hafa komið fram með hugmyndir, t.d. Benedikt Sigurðarson, Hallur Magnússon og Gylfi Magnússon, auk nýju laganna frá 17. nóvember.

En það er rangt að tala um verðtrygginguna sem geranda. Samt er mjög áberandi í umræðunni að þetta sé "allt út af verðtryggingunni." Sumir vilja kenna smæð krónunnar um en að mínum dómi eru það menn sem (mis)nýttu sér smæð hennar til að hagnast, sem bera stærsta sök.

Þegar bönkum var hleypt á íbúðalánamarkaðinn 2004 hófst hin mikla hækkun fasteignaverðs og stjóð í þrjú ár. Hún var fjármögnuð með peningum sem nú hefur komið í ljós að voru ekki til. Það verður að reisa varnir - með alvöru reglum - gegn því að menn geti aftur leikið sér þannig í Matador með fólk og eignir þess. Annars verður bara endurtekið efni eftir nokkur ár.

Umfjöllun um þessa hlið málsins er lítil en því meira talað um að kasta krónunni og taka upp evru. Það er einfaldlega óraunhæft að tala um það sem lausn núna, því að hér verður engin evra næsta áratuginn. Það þarf að miða viðbrögðin við veruleikann en ekki óskhyggju.


Möppudýragarður

Þegar pælt er í gegnum texta um ESB er það hreinasta torf á köflum. Áður en maður veit af er maður búinn að fótbrjóta sig í kjaftinum. Hér er til gamans listi yfir helstu stofnanir og stöður innan þeirra, samninga, reglur og embætti.

Ef þú vilt æfa þig fyrir "heimanámið" sem framundan er vegna kynningar á ESB er það ágætis byrjun að sjá hve marga af þessum liðum þú þekkir. Veistu hver er hlutverkaskiptingin á milli commission, counsil og parlament? Veistu hvað allt þetta er á íslensku? Eða hvað er til af aðgengilegu efni á íslensku um Evrópusambandið? 

  • European Union (EU)
    European Community
    Common Foreign and Security Policy (CFSP)
    Police and Judicial Co-operation in Criminal Matters (PJC)
    European Parliament
    European Counsil
    European Commission
    Charter of Fundamental Rights
    European Constitution
    The Laeken declaration
    Berlin Declaration
    Ioannina Compromise
    Single European Act
    Common Foreign and Security Policy (CFSP)
    Copenhagen Criteria
    Schengen Agreement
    Treaty establishing the European Community (TEC, Rome)
    Treaty on the Functioning of the European Union (TFEU)
    Treaty of Amsterdam
    Treaty of Nice
    Treaty on European Union (TEU, Maastricht)
    Treaty of Lisbon (Reform Treaty)
    Treaty on the Functioning of the European Union
    Commission of the European Communities
    The European Convention
    Action Committee for European Democracy (ACED)
    Intergovernmental Conference (IGC)
    European Convention on Human Rights
    Western European Union (WEU)
    European Defence Agency
    Eurozone
    Europol
    Eurojust
    President of the European Union
    President of the European Commission
    Vice-President of the Commission
    High Representative for Foreign Affairs
    Representative for Foreign Affairs and Security Policy
    High Representative of the Union for Foreign Affairs and Security Policy
    European Commissioner for External Relations and European Neighbourhood Policy
    Union Foreign Minister
    EU Council's Presidency
    President-in-Office of the European Council
    Presidency of the Council of the European Union
    Secretary-General of the Council
    European Central Bank
    European Court of Justice
    European Defence Agency
    Court of Justice of the European Communities
    European Court of Human Rights
    Area of Freedom, Security and Justice (AFSJ)
    Court of First Instance

Á listanum er ekkert um efnisþætti eins og vöruflutninga, fiskveiðistefnu, samkeppnisreglur og menningu svo dæmi séu tekin. Það að ganga í ESB snýst um margt annað en nýjan gjaldmiðil. Umræðan þarf að fara að snúast meira um þá þætti.

 


Nýtt félag: HOLLVINIR KRÓNUNNAR

seðlar_gamlirMín fyrstu laun voru 7 krónur og 50 aurar fyrir að selja nokkur blöð fyrir Halldór gamla á bókasafninu. Þá fékk ég bæði rauðan fimm króna seðil og túkall. Þennan stóra. Líka tvo 25 aura peninga, enda var 50 aurinn ekki kominn þá.

Þetta var áður en Evrópusambandið bannaði börnum að selja merki. Svo seldi ég merki á sjómannadaginn og fékk mikla peninga. Flottast var að fá 25 króna seðil af því að það var mynd af Ísafirði á framhliðinni. Vestmannaeyjar voru á bakhlið.

Það var ekki lítið spennandi þegar fyrsti 5.000 króna seðillinn kom, ég fékk einn svoleiðis í fermingargjöf. Álkrónan kom en stoppaði stutt, hún hvarf þegar núllin tvö voru klippt burt. Það voru líka seðlar sem gerðu stuttan stans, græni 500 kallinn með Hannesi Hafstein og Kjarvals seðill upp á 2.000 krónur. Það kom aldrei aftur 5 króna seðill. En við fengum rauðan 500 króna seðill, sem er notaður í dag.

Blessuð Krónan okkar. Hún á sér fáa vildarmenn þessa dagana og ef hrakspár ganga eftir skilja leiðir þjóðar og Krónu áður en langt um líður.

seðlar_sjaldgAldrei hefur Krónan gengið gegnum jafn erfiða tíma og síðustu misseri. Vondir menn hafa farið illa með hana. Fjárglæframenn, vopnaðir afleiðum, vafningum og glæpsamlegri græðgi, hafa svívirt hana með misgjörðum sínum. Þeim dettur ekki í hug að biðjast afsökunar eða sýna iðrun heldur kenna þeir Krónunni um glæpinn. Nema hvað? Samt er hún bara gjaldmiðill en var aldrei starfsmaður í seðlabanka eða fjármálaeftirliti.

Nú er blessuð Krónan svo grátt leikin að hún þykir ekki boðleg lengur fyrir smjörgreidda glæpamenn á stuttbuxum og því þarf að skipta henni út. Drengirnir þurfa nýtt leikfang og heimta evru, sem er bæði útlensk og sexý. Þess vegna segja þeir okkur að krónan sé dauð. Það er ekki hægt að nota hana í neitt nema kannski til að kaupa lýsi og slátur. Þeir bíða líka færis á að sparka fjallkonunni og deita Evu.  

seðlar_nyirÉg legg til að stofnað verði nýtt félag: HOLLVINIR KRÓNUNNAR. Menn geta þá gengið í félagið hver á sínum forsendum; sumir til að fylgja Krónunni til grafar og aðrir bara út á rómantíkina. Kannski finnast líka ennþá menn sem trúa að Krónan sé ekki dauð og vilja standa vörð um heiður hennar. Væri ekki fésbókin ágætis vettvangur?


Túkall

 


Er búið að rassskella Heimdall?

Fyrir tíu dögum sendi Heimdallur frá sér djarfa ályktun. Þar kröfðust ungir sjálfstæðismenn breytinga á stjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Þeir fóru meira að segja fram á að báðir stjórnarflokkarnir gerðu breytingar á ráðaherraliði sínu. Krafa Heimdellinga var mjög skýr og birt í öllum fjölmiðlum.

Þegar ályktunin kom datt manni í hug að einhver eldri væri með í ráðum, sæti jafnvel undir stýri meðan allir ungliðarnir voru sendir út að ýta. En núna heyrist hvorki hósti né stuna. Samt hefur ekki verið nein lognmolla á þeim sviðum þar sem ungliðarnir kröfðust breytinga.

Ungir framsóknarmenn gerðu kröfur um breytingar á stjórn síns flokks og Guðni sagði af sér. Þegar ungir sjálfstæðismenn létu í sér heyra hélt maður að unga fólkið ætlaði nú að láta til sín taka í kreppunni og standa fyrir nauðsynlegri naflaskoðun. En Heimdallur, þessi útvörður ásanna, gelti bara einu sinni.

Voru ungliðarnir kallaðir fyrir og teknir á beinið af Flokknum? Er kannski búið að rassskella Heimdall og segja honum að sitja og bíða stilltur eftir landsfundi? Það má vera að þeir séu að stilla saman strengi sína í Evrópumálum en það er skrýtið að þeir þegi þunnu hljóði yfir öllu öðru sem er að gerast. Af nógu er að taka.


Þetta endar með rothöggi

Þegar seðlabankastjóri flutti ræðu á frægum morgunverðarfundi 18. nóvember hófst bardagi sem stendur enn. Og nú er farinn að færast hiti í leikinn. Davíð sagði, ríkisstjórnin svaf. Geir svaraði, seðlabankinn sagði ekki neitt. Það var fyrsta lotan.

Nú heldur atið áfram. Davíð sló fram 0% yfirlýsingunni en Geir svaraði, að þetta hafi kannski verið símtal. Og nú fylgir Geir sókn sinni eftir og opnar á Evrópuviðræður, sem hann styður samt ekki sjálfur. Skyldi þetta enda með rothöggi.

Hannes, hornamaður Davíðs, hefur sig lítið í frammi í augnablikinu en Þorgerður, sem vill engin hornkerling vera, fylgist með úr stúkunni enda bardaginn bæði spennandi og skemmtilegur. Össur fylgist líka með en er ekki skemmt, hann heldur að það sé eitthvað rotið við þetta. Björgvin og Ingibjörn eru líka orðin nett pirruð.

Það skrýtna við þennan bardaga er að ef Geir tapar þá fær hann samt verðlaunin. Stjórnin springur og ný stjórn mynduð, jafnvel án kosninga. Þá getur Geir myndað nýja stjórn með Vinstri grænum, vegna andstöðu beggja við aðild að Evrópusambandinu. Geri verður áfram forsætisráðherra en Davíð víkur. 

Það ætti að vera hægt að veðja á þennan bardaga á Lengjunni.


mbl.is Aðildarviðræður koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hurðaskellir í Evrulandi - nýr þröskuldur

Hvað eru þá eiginlega mörg ár þangað til Ísland á einhverja möguleika á evru? Maður hlýtur að spyrja sig eftir lestur makalausrar greinar í Mogganum í dag. Á blaðsíðu 39 er grein eftir mann sem heitir Erik Berglof og er yfirhagfræðingur Endurreisnar- og...

Minnkandi þolinmæði Samfylkingarmanna

Í nýrri skoðanakönnun MMR minnkar stuðningur kjósenda Samfylkingar við ríkisstjórnina um heil 10 prósentustig frá því í október. Það er ekki lítið. Greinilegt að Davíðsmál eru farin að reyna á þolrifin og ekki nema rétt helmingur Samfylkingar sem styður...

EVRA: Einföld lausn sem kostar ekkert!

Hvers vegna er þetta ekki bara drifið af í einum grænum? Það er alltaf verið að benda á góðar lausnir en samt gerist ekket. Virtur sérfræðingur segir að besti kosturinn sé að taka upp evru einhliða. Virtur sérfræðingur segir okkur að það væri algjört...

Hvað er þessi vindhani að derra sig?

Hefur hann umboð frá Íslendingum? Þykist hann geta tekið ákvarðanir fyrir okkar hönd? Ætlar hann kannski að taka að sér að sjá um þingkosningar líka, mynda ríkisstjórn og breyta stjórnarskránni? Hann er kannski að reyna að koma Íslandi inn í ESB á 6...

Glæpastarfsemi og nauðsynleg bankaleynd

Bankaleynd á fullan rétt á sér og getur verið nauðsynleg fyrir fólk og fyrirtæki sem á í heiðarlegum bankaviðskiptum. En hún getur líka "þvælst fyrir" þegar menn fara ekki eftir leikreglum og afla þarf upplýsinga um fjármál þeirra. Þegar ætluð sakamál...

Er þetta löglegt hjónaband?

Síðast þegar Davíð átti sviðið var það vegna upplýsinga um afskipti hans af hjónabandi forsetans. Nú þegar upplýst hefur verið að Gróusögurnar um framboðshótanir Davíðs voru engar Gróusögur veltir maður fyrir sér hvort "hjónaband" hans og Geirs sé...

Nú á Geir aðeins einn kost: Að reka Davíð!

Fyrst þegar það kvisaðist að Geir Haarde þorði ekki að reka Davíð vegna þess að hann hótaði að stofna nýjan flokk tók maður því sem hverri annarri kjaftasögu. Það væri útilokað að í þessari miklu krísu væri hagur flokksins settur í fyrsta sæti. En það...

Írar skulu samþykkja Lissabon! (Verður ESB þá vondur kostur fyrir fámenn ríki?)

Á föstudaginn var birt frétt á vef Financial Times, sem segir að nefnd á vegum írska þingsins telji engar lagalegar hindranir fyrir því að bera Lissabon samninginn aftur undir þjóðaratkvæði, jafnvel óbreyttan. Samningnum var hafnað af írsku þjóðinni 12....

Má bjóða þér banka með kaffinu?

Nú er stjáklað í rústum bankanna og leitað að góðum stað fyrir nýjan hornstein. Á meðan reynum við að átta okkur á hver á hvað. Hver á bankana og hvað eiga bankarnir? Sagt er að mikil völd geti falist í því að ráða yfir þeim. Vegna skuldsetningar "eiga"...

Lykilorustan verður meðal almennings

Styrmir Gunnarsson var annar þriggja ræðumanna á fundi Heimssýnar. Ég segi annar þriggja af því að Kári í DeCode forfallaðist. Og hann er alveg hörku ræðumaður. En þetta er ekki nein einkasamkoma Sjálfstæðisflokksins eins og einhver kynni að ráða af...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband