Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.1.2010 | 17:48
Össur þekkir aðalatriðin!
Fréttir dagsins snúast um IceSave. Hvar sem Ísland ber á góma er IceSave miðpunkturinn. Þessar drápsklyfjar sem Samfylkingin vill fyrir alla muni leggja á þjóðina, helst með slíkum afarkostum að hún fái ekki undir þeim risið.
Þá kemur Össur með stórfréttina: Utanríkisráðherra Breta fullvissaði hann um að Bretar muni ekki beita sér gegn aðildarumsókn Íslands að Evrópuríkinu! Er það ekki aukaatriði þessa dagana?
Þetta er enn ein sönnun þess fyrir Samfylkingunni snýst allt um það að koma Íslandi inn í Evrópuríkið. Að skríða yfir velferðarbrú til Brussel.
Versti óvinur íslensku þjóðarinnar í IceSave málinu er Samfylkingin. Mér sýnist að Eva Joly geti orðið sterkasta vopn Íslendinga í stríðinu við krata.
![]() |
Bretar beita sér ekki gegn Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.1.2010 | 13:05
RÚV - sameign okkar allra
Það verður fróðlegt að fylgjast með fréttum RÚV í kvöld. Meðan írafárið gekk yfir, fyrst eftir að forseti tók ákvörðun um nýju IceSave lagabreytinguna, birti fréttastofa RÚV fjölda frétta um neikvæð viðbrögð við ákvörðuninni. Kastljósið stóð sig betur.
Í dag er rykið aðeins farið að setjast. Jákvæðar fréttir berast víða að. Fræðimenn við tvo hollenska háskóla hafa talað máli Íslendinga, sem og írskur hagfræðingur, breskur hagfræðingur, Eva Joly, leiðarahöfundar bresku blaðanna Financial Times og Independent, aðrir minni vefmiðlar og ráðherra í Lettlandi, svo dæmi séu nefnd, að ógleymdri góðri frammistöðu Ólafs Ragnars í viðtali á BBC Nightwatch. Meira að segja Steingrímur Joð komst vel frá viðtali við Channel 4.
Það virðist sem að það sé að myndast víðtækur stuðningur við Ísland í alþjóðasamfélaginu. Sumt af því erlenda nær lengra en að styðja ákvörðun forsetans. Það er eins og nú sé það aðeins Samfylkingin á Íslandi sem stendur gegn þjóðinni. Skyldi RÚV gera jafn glögga grein fyrir hinum jákvæðu viðbrögðum og hinum neikvæðu? Ætlar "sameign okkar allra" að flytja vandaðar hlutlausar fréttir eða vera áfram í lið með Samfylkingunni í stríðinu gegn íslensku þjóðinni?
Fyrir utan hótanir og hræðsluáróður krata hafa ekki komið neina beinar hótanir að utan, nema kannsk varðandi inngönguna í Evrópuríkið. Einn hollenskur Evrópuþingmaður hefur hótað að reyna að koma í veg fyrir inngöngu Íslands. Kann ég honum bestu þakkir fyrir.
Einn þingmaður Samfylkingar gengur svo langt að halda því fram að forseti Íslands skilji ekki málið og hafi verið blekktur (hér). Framganga Ólafs Ragnars á BBC Nightwatch bendir hins vegar til þess að hann geri sé fulla grein fyrir alvöru málsins og að skilningur hans á því sé síst minni en meðal ráðherra og þingmanna.
Uppgjöf er alltaf vondur kostur. Áfram Ísland.
![]() |
Áhersla lögð á að Ísland standi við skuldbindingar sínar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.1.2010 | 12:40
Stórkostlegt - áfram Ísland!
Hafi ég einhvern tímann sagt eitthvað neikvætt um forseta vorn, herra Ólaf Ragnar Grímsson, er það hér með dregið til baka. Herra Ólafur Ragnar er kjarkmaður og réttsýnn. Í dag stóð hann með þjóð sinni og gerði það af miklum sóma.
Nú þarf þjóðin að fylgja á eftir og fella Nýja-IceSave með glæsibrag.
Auðvitað eigum við að greiða það sem okkur ber að lögum. Úr því hefur aldrei fengist skorið. Hinir skelfilegu samningar frá 5. júní bera þess merki að Bretar neyttu aflsmunar og knúðu fram nauðasamninga af verstu gerð. Óvissan og áhættan er öll sett á íslensku þjóðina.
Meðal vestrænna þjóða á 21. öld á engin þjóð að þurfa að vera hrædd við að leita réttar síns, sama hversu fámenn hún er. Sá sem hefur réttin sín megin er aldrei minni máttar.
Áfram Ísland!
![]() |
Staðfestir ekki Icesave-lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.1.2010 | 16:40
"Já ómögulega eða nei ómögulega"
Áramótaskaupið var meiriháttar. Sterkasta myndin er án efa fjallkonan sem var kefluð og hlekkjuð við vegg á meðan dólgar af ýmsum gerðum léku sér óvarlega með fjöreggið. Fjallkonan var tákn íslensku þjóðarinnar í skaupinu. Hótunarstíll Jóhönnu var líka á sínum stað.
"Getum við fengið Pólverjana aftur?" spurðu viðskiptavinir Krónunnar eftir að hafa fengið ýmis sérkennileg svör frá starfsmönnum á kassa. Eitt þeirra var þegar viðskiptavinur vildi ómögulega fá afritið. Kassadaman spurði "já ómögulega eða nei ómögulega?" Frábært atriði.
Núna glímir forsetinn við klemmu sem mætti einmitt lýsa með þessum orðum. Sumir telja að hann geti ómögulega sagt já, aðrir að hann geti ómögulega sagt nei.
Segi forsetinn já og skrifi undir Nýja IceSave er hann orðinn "meðsekur" í því skemma IceSave lögin frá því í sumar. Nýju lögin ganga út á að veikja fyrirvara laganna og um leið stöðu Íslands. Þau auka verulega hættuna á að efnahagur þjóðarinnar verði skaðaður alvarlega og menn búi hér við skert lífskjör um áratuga skeið.
Segi forsetinn nei gerist hann ekki sekur um neitt. Hann gefur þá frá sér valdið og vísar því til þjóðarinnar. Þjóðin tekur á ákvörðun í beinum og lýðræðislegum kosningum. Verði lögin felld gerist ekki annað en það að lögin sem Alþingi samþykkti 28. ágúst standa þá óbreytt. Lögin sem Jóhanna Sigurðardóttir sagði að væru skynsamleg og eðlileg niðurstaða.
Hvort sem forsetinn segir nei eða já, mun ríkisábyrgðin standa. Einnig það að við borgum. Um það er því miður ekki hægt að kjósa. Eini munurinn er að með því að hafna hinum skelfilegu lögum frá 30. desember verður okkur gert þetta heldur skaplegra og hættan á því að leggja efnahaginn í rúst minnkuð verulega.
Vonum að forsetinn standi með þjóðinni og gegn ríkisstjórn Jóhönnu sem sagt hefur þjóð sinni stríð á hendur í uppgjöfinni fyrir Gordon Brown. Að forsetinn losi fjallkonuna úr hlekkjunum og segi nei.
![]() |
Skora á forsetann að staðfesta Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2009 | 12:49
Gordon Brown hafði sigur á Alþingi
Í gærkvöldi samþykkti Alþingi lög um skilyrðislausa uppgjöf fyrir Bretum og ESB í IceSave deilunni. Frumvarpið gekk út á það að skemma lögin sem sett voru í sumar. Að þurrka út lagaleg viðmið og veikja þau efnahagslegu. Allt til að þóknast Gordon Brown. Spellvirki gegn íslensku þjóðinni í boði Evrópusambandsins.
Að leggja slíkt frumvarp fram á Alþingi er nógu slæmt. En að 33 þingmenn skuli hafa greitt þessum ófögnuði atkvæði sitt er hrein og klár bilun.
"Annars verður hér frostavetur" sagði forsætisráðherrann Jóhanna. Má ég frekar biðja um frostavetur en þetta. Lögin eru ávísun á ísöld, sem skellur á af fullum þunga eftir sjö ára svikalogn. Já, það er núna fyrst sem IceSave byrjar!
Það er grunnskylda þingmanns að standa vörð um rétt og velferð þjóðarinnar. Þeir sem ekki treysta sér til þess eiga ekki að vera í stjórnmálum. Í gærkvöldi fyrirgerðu 33 þingmenn rétti sínum til að starfa í umboði þjóðarinnar.
Það á ekkert að vera sjálfsagðara en að Íslendingar greiði það sem þeim ber. En að sætta sig við afarkosti sem Bretar knúðu fram í krafti aflsmunar, beygja sig í duftið og ana út í óvissuna án þess að hafa fast land undir fótum, er hættuför sem á ekkert skylt við að standa við skuldbindingar. Þetta er sorgleg niðurstaða.
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2009 | 12:31
Skynsamlegt hjá forsetanum
Auðvitað á Ólafur Ragnar að harðneita að skrifa undir uppgjöf ríkisstjórnarinnar fyrir Gordon Brown og Evrópusambandinu. Þjóðarinnar vegna. En líklega er það skynsamlegt hjá honum að bíða með að skrifa eða skrifa ekki undir, fram yfir áramótin.
Þó ekki væri nema bara af þeirri ástæðu að það minnkar líkurnar á að það sjóði uppúr og brjótist út róstur í kvöld og nótt þegar menn fá sér í glas til að kveðja gamla árið og fagna því nýja. Það er fyrirsjáanlegt að viðbrögðin verða mikil, hver sem ákvörðun forsetans verður.
![]() |
Forseti tekur sér frest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2009 | 19:36
Frumvarp til laga um spellvirki gegn íslensku þjóðinni
Nú rennur stóra stundin upp. Í kvöld verða greidd atkvæði um frumvarp til laga um að leyfa Samfylkingunni, með aðstoð Vg, að fremja skelfileg spellvirki gagnvart íslensku þjóðinni.
Það er merkilegt að sjá hversu mörg blogg hafa verið skrifuð um málið þar sem hvergi kemur fram um hvað frumvarpið raunverulega snýst. Menn tala um að ljúka málinu" sem er aldeilis fráleitt. Því lýkur ekki með því að samþykkja drápsklyfjarnar, þá fyrst hefst IceSave fyrir alvöru.
Aðrir segja við getum ekki neitað að borga". Málið snýst ekki um það heldur. Ríkisábyrgð vegna IceSave var samþykkt á þingi í lok ágúst, illu heilli. Lögin þar um tóku gildi 3. september.
Hér er smá samantekt til að stytta þeim leið sem kynnu að líta á þessa bloggsíðu og vilja skoða frumvarpið og kynna sér út á hvað það gengur.
Samningarnir og lögin:
Það þarf engan snilling til að sjá að samningarnir tveir, við Breta (hér) og Hollendinga (hér) eru alveg hreint skelfilegir fyrir Ísland. Það er óþarfi að fara nánar út í þá sorgarsögu hér. En í júní lagði fjármálaráðherra fram frumvarp um ríkisábyrgð vegna IceSave, sem var svohljóðandi:
Fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að veita Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta ríkisábyrgð vegna lána sjóðsins frá breska og hollenska ríkinu samkvæmt samningum dags. 5. júní 2009 til að standa straum af lágmarksgreiðslum, sbr. 10. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi. Ábyrgðin tekur til höfuðstóls lánanna eins og hvor um sig mun standa að sjö árum liðnum frá undirritun samninganna, 5. júní 2016, auk vaxta af lánsfjárhæðinni, og afmarkast að öðru leyti af ákvæðum samninganna, þ.m.t. um endurskoðun þeirra. Fjármálaráðherra setur Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta frekari skilyrði vegna ábyrgðarinnar einkum varðandi eftirlit með fjárhag hans og endurheimtu eigna úr búi Landsbanka Íslands.
Þetta er ein lagagrein auk gildistökuákvæða. Engir fyrirvarar og engar varnir. Þetta frumvarp átti að verða að lögum með hraði og helst án þess að þingmenn fengju að kynna sér samningana fyrst. Ekki þarf að taka fram að hver einasti krati í Samfylkingunni var tilbúinn til að segja já strax. Þeir þurftu ekki að hugsa sig um.
Sem betur fer tókst að stöðva þessa atburðarrás og í lok ágúst samþykkti Alþingi lög, eftir mikla vinnu. Þau lög töldu níu greinar (hér), en innihald greinanna er sem hér segir:
- grein: Ríkisábyrgð á Icesave-lánasamningum.
- grein: Forsendur fyrir veitingu ríkisábyrgðar.
- grein: Efnahagsleg viðmið.
- grein: Lagaleg viðmið.
- grein: Endurskoðun lánasamninganna.
- grein: Eftirlit Alþingis.
- grein: Skilmálar ríkisábyrgðar.
- grein: Endurheimtur á innstæðum.
- grein: Gildistaka.
Þetta eru sem sagt lögin frá því í sumar, nr. 96/2009, sem eru í gildi. Nýja frumvarpið gengur út á að breyta þeim til hins verra.
Nýja frumvarpið
Það frumvarp sem nú er þjarkað um (hér) verður borið undir atkvæði í kvöld. Samkvæmt því skal fella niður bæði 3. grein og 4. grein laganna, þó þannig að tvær málsgreinar um efnahagsleg viðmið eru færðar til og fá að halda sér. Grein um lagaleg viðmið er felld brott. Einnig er 2. greininni breytt þannig að ákvæði um forsendur hverfa út en tvær málsgreinar um lagalega stöðu koma í staðinn.
Fjármálaráðherra mælti fyrir þessu frumvarpi 19. október, tæpum sjö vikum eftir að lög 96/2009 tóku gildi. Það tók Gordon Brown ekki langan tíma að taka íslenska krata á taugum. Hann vissi að þeir myndu bretta upp ermar og fara í stríð gegn íslensku þjóðinni. Kratar gera hvað sem er til að komast í Evrópuríkið.
Verði þetta nýja frumvarp að lögum eykur það hættuna á að hér skelli á efnahagsleg ísöld af fullum þunga þegar sjö ára svikalogni lýkur. Kannski fyrr. Varnir Íslands eru veiktar. Það getur líka leitt til greiðsluþrots þjóðarinnar.
Það er sorglegt að horfa upp á að Samfylkingin komist upp með það að fremja slík spellvirki gegn þjóðinni, bara vegna ESB draumsins. Þeir líta á IceSave sem aðgöngumiða að Evrópuríkinu. Enn verra er ef Vinstri grænir veita þessum ófögnuði brautargengi. Þó þeim kunni að finnast það göfugt verkefni að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum eru takmörk fyrir því hversu miklu má fórna.
Það er jú þjóðin sem borgar brúsann ... ef hún getur.
![]() |
Bjóða eiðsvarinn vitnisburð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.12.2009 | 12:50
Að kyrkja lítið dýr
Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti" sagði Jón Hreggviðsson, ein frægasta persóna Halldórs Laxness. Líklega bar snærisþjófurinn frá Rein meira skynbragð á réttlæti en þau sem nú fara með stjórn Íslands og hafa ekki í sér dug til að stand vörð um rétt þjóðarinnar. Samt buðu þau sig fram og voru kjörin til þess.
Maður sem ætlar að kyrkja lítið dýr í greip sinni mun að lokum þreytast. Hann heldur því armsleingd frá sér, herðir takið um kverkar þess sem má, en það deyr ekki; það horfir á hann; klær þess eru úti. Þetta dýr mun ekki vænta sér hjálpar þó tröll komi með blíðskaparyfirbragði og segist skulu frelsa það. Hitt er lífsvon þess að tíminn sé því hallkvæmur og lini afl óvinar þess.
Ef varnarlaus þjóð hefur mitt í sinni ógæfu borið gæfu til að eignast mátulega sterkan óvin mun tíminn gánga í lið með henni einsog því dýri sem ég tók dæmi af. Ef hún í neyð sinni játast undir tröllsvernd mun hún verða gleypt í einum munnbita.
Þetta sagði Arnas Arnæus, önnur fræg persóna úr Íslandsklukkunni, þegar honum var boðið að gerast landstjóri Þjóðverja á Íslandi. Og hann bætti við: "Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima."
Því miður er reisn af þessu tagi ekki að finna meðal þeirra sem nú sitja á valdastólum. Mörg þeirra vilja játast undir tröllsvernd af dugleysi og hugleysi einu saman. Arne Arnæus sendi Jón Hreggviðsson frá Rein heim til Íslands með þessi skilaboð:
Þú getur sagt þeim frá mér að Ísland hafi ekki verið selt; ekki í þetta sinn. Þeir skilja það seinna.
Vonum að Ísland verði ekki selt núna heldur. IceSave uppgjöfin gæti verið forleikur að hinni endanlegu uppgjöf kratanna, sem enn trúa á blíðskaparyfirbragð og halda að Evrópuríkið sé bara efnahagsbandalag. Svo sterk er trú þeirra að þeir vilja leggja IceSave drápsklyfjar á þjóð sína til að komast þangað inn.
![]() |
Svavar neitaði að mæta á fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2009 | 02:12
Valgerður/valkostur í Kastljósinu
Er konan klikkuð? spurði ég sjálfan mig upphátt þegar ég horfði á Valgerði Bjarnadóttur í Kastljósinu í kvöld. Umræðuefnið var IceSave, hvað annað. Meðal annars var spurt um hvort bera ætti málið undir þjóðaratkvæði. Valgerður sagðist alls ekki vantreysta fólki, en bætti svo við:
Ég tel þetta mál hins vegar þess eðlis, að ég tel að það sé betra að kjörnir fulltrúar fjalli um það, beri ábyrgð á því takist á við afleiðingarnar og sé þá hent út af þingi þegar þar að kemur, ef fólkið telur að það hafi verið rangt.
Ef kjörnir fulltrúar taka ranga ákvörðun á að leysa málið með því að henda þeim út af þingi og kjósa nýja. IceSave skuldin hverfur ekki við það. Þjóðin situr samt eftir með drápsklyfjar, en það á að vera í lagi af því að það eru komnir nýir þingmenn.
Má ég biðja um nýjan valkost? Að henda kjörnum fulltrúum útaf þingi ÁÐUR en þeir valda skaða. Það er orðið deginum ljósara að þeim er ekki treystandi í þessu máli, því miður.
Bara í kvöld birti Mbl.is 6 fréttir um IceSave á þremur tímum. Eyjan og Vísir birtu 6 fréttir til viðbótar en DV virðist ekki vera með kvöldvakt. Fréttirnar eiga meira og minna rætur að rekja til bakhandarvinnubragða ríkisstjórnarinnar.
Stjórnin hefur klúðrað málum á öllum stigum, leynt gögnum, haft í hótunum og ítrekað orðið uppvís að því að segja þingi og þjóð ósatt. Hún eyðir kröftum sínum í að réttlæta vondan samning. Ver hagsmuni Breta og Hollendinga með kjafti og klóm en gætir ekki hagsmuna þjóðar sinnar. Íslenskur almenningur hefur enga ástæðu til að treysta ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur í þessu máli.
Þingmenn Samfylkingar virðast í keppni um hver getur þagað mest í umræðunni um þetta stóra og erfiða mál. Þeir bíða bara eftir því að Jóhanna segi þeim að mæta í þingsal og styðja á já-hnappinn. Þá er nú heilbrigðara að láta þjóðina um að taka ákvörðun.
![]() |
Icesave-umræðu frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2009 | 19:21
Flokkurinn eða þjóðin
Það kemur æ betur í ljós hvílík mistök það voru að sækja um aðild að ESB á meðan IceSave var enn óklárað. Umsóknin hefur orðið að vopni í höndum Breta, meira að segja svo að Jóhanna Sigurðardóttir kvartaði undan því í stefnuræðu sinni. Þessi ótímabæra umsókn hefur skapað vonda umgjörð um IceSave og gert það mun erfiðara viðfangs en ella.
Það voru hræðileg mistök hjá Steingrími að láta Jóhönnu og Össur þvinga sig í þessa umsókn svo löngu áður en hún gat með nokkru móti talist tímabær.
Það hljómar alltaf jafn fáránlega þegar talað er um að afdrif frumvarpsins (sem er um að skemma IceSave lögin frá því í sumar) séu í höndum tveggja eða þriggja þingmanna. Það eru 63 kjörnir fulltrúar á þingi og þeir eiga allir að greiða atkvæði af skynsemi og með hagsmuni þjóðar sinnar að leiðarljósi. Líka Samfylkingarmenn, þótt engin virðist gera kröfu til þeirra um það.
Í viðtengdri frétt er sagt að Ásmundur Einar Daðason muni líklega styðja frumvarpið. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að formaður Heimssýnar láti þvinga sig til þess að skrifa upp á þennan aðgöngumiða Samfylkingarinnar að Evrópuríkinu.
Hvort er mikilvægara, ein ríkisstjórn eða framtíð þjóðarinnar? Einn stjórnmálaflokkur eða lífskjör okkar allra næstu áratugina?
Ég spyr vegna þess að í fréttinni er sagt að Ásmundur Einar muni styðja nýja skemmdar-frumvarpið um IceSave "til að ekki verði sundrung innan Vinstri grænna". Þegar menn líta til baka eftir þrjátíu ár verður það algjört aukaatriði hvort það varð sundrung í einhverjum stjórnmálaflokki árið 2009. Eða hvort vinstri stjórnin féll í janúar eða júní. Á næsta ári eða þarnæsta. Það væri algjörlega galið að segja já við skemmdar-frumvarpinu á þessum forsendum.
Í fréttinni segir líka "fáir vilja bera ábyrgð á því að hafa fellt vinstri stjórnina". Því spyr ég aftur, hvort skiptir í raun og veru meira máli, ein ríkisstjórn eða framtíð þjóðarinnar og lífskjör?
![]() |
Átök innan Vinstri grænna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |