Dýrasta símanúmer í heimi

Nokkrum sinnum á undanförnum dögum hef ég séð vitnað í Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra USA, þar sem hann sagði: Who do I call if I want to call Europe? 

telephone_oldKissinger vissi auðvitað að Evrópa var ekki land eða ríki og sagði þetta í hæfilegri alvöru. En núna, þremur og hálfum áratug síðar, er spurningin ekki jafn röng. Nýja Evrópuríkið telur 27 af löndum Evrópu og mun fá sinn eigin utanríkisráðherra þegar það verður stofnað eftir tvær vikur.

Í dag er Hillary Clinton utanríkisráðherra USA. Embættið þar heitir „Secretary of State" en titillinn í nýja Evrópuríkinu er miklu veglegri: „The High Representative of the Union for Foreign Affairs and Security Policy". Hvorki meira né minna. Enda búið að skrifa heilu kaflana inn í samninga Evrópuríksins um nýja ráðherrann.

Hillary Clinton veit hvert hún á að hringja.

Undir nýja ráðherrann, sem svarar í símann í Evrópuríkinu, munu strax færast um 1.800 starfsmenn og síðar munu fleiri bætast við. Kostnaðurinn við að koma upp hinu nýja embætti er eitthvað á annan milljarðinn, mælti í €vrum. Líklega dýrasta símanúmer í heimi.

Undir hann heyra líka sendiskrifstofurnar, sem verða að sendiráðum Evrópuríkisins. Þau fyrstu líklega í New York, Kabúl og Addis Ababa en alls verða þau 160. Yfirmennirnir (senior diplomats) verða framvegis sendiherrar (ambassadors) og starfsmenn nýja ráðherrans alls um 6-7 þúsund.

telephone_ClintonEf Hillary Clinton vill hringja í Evrópuríkið hringir hún í dýrasta símanúmer í heimi.

Nema hún þurfi að hringja til fullvalda ríkis utan Evrópuríkisins, t.d. Noregs eða Sviss, þá reddar ritarinn því.

Ef hún þarf að hringja til Íslands er það Össur sem svarar í gemsann.


Sumir líta e.t.v. á það sem kost við að færa völd frá aðildarríkjunum til ráðherrans með símann að núna veit frú Clinton hvert hún á að hringja en gerir ekki meinlaust grín eins og Kissinger um árið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hressilega skrifaður pistill hjá þér, Haraldur.

Það segir líka sína sögu, að þessir 'senior diplomats' verða að 'ambassadors', m.ö.o. að "ministres extraordinaires et plénipotentiaires", þ.e. með umboðsvald sem ráðherrar eins og fullmektugir sendiherrar.

Jón Valur Jensson, 18.11.2009 kl. 15:19

2 Smámynd: Haraldur Hansson

Já, Jón Valur, það er sama hversu margar staðreyndir blasa við, sem sýna að hér er um síaukinn pólitískan samruna að ræða, aftur og aftur heyrir maður ESB-sinna tala um aðild eins og við séum á leið í Efnahagsbandalagið sem var lagt niður 1993.

Tek fram að ég boraði ekki í frumtextana til að sannreyna þetta með nafngiftirnar diplomats og ambassadors, en treysti á að notuð séu rétt starfsheiti í umfjöllun Telegraph.

Haraldur Hansson, 18.11.2009 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband