Gengur á með góðum fréttum!

Mitt í öllu hruninu, samdrætti og pólitísku þjarki er fín tilbreyting að rekast á eina og eina góða frétt. Ekki er verra ef þær koma í kippum, eins og í dag.

Álverð hækkar
Í Moggafrétt er talað um 18% hækkun álverðs það sem af er júní. Íslandsbanki slær þann varnagla að þetta geti verið tímabundið.

Atvinnuleysi minnkar
Rúv.is segir að nú séu 14.595 án atvinnu og að atvinnuleysi hafi minnkað um 1,5%, þrátt fyrir fjölgun atvinnulausra í hópi 16-24 ára.

Kína vaknar
Það hljóta að vera góðar frétti í alheimskreppunni þegar 3. stærsta hagkerfi í heimi sýnir batamerki. Amx.is skrifar frétt um málið.

Jákvætt fyrir hagkerfið
"Það leikur enginn vafi á því að í því árferði sem nú ríkir eru aukin ferðalög Íslendinga innanlands afar jákvæð fyrir hagkerfið í heild." Svo segir í Morgunkorni dagsins.

 

Refskák... en þá kom IceSave frétt:

Það var svo sem auðvitað að ekki væri hægt að njóta eintómra góðra frétta í einn dag.

Skuldbindingar ríkisins hækka og hækka og nýjustu tölur í "IceSave-hneykslinu" eru hneykslanlegar.

Baldur McQueen, ágætur bloggari í Manchester segir að e.t.v. getum við verið þakklát fyrir að þær drápsklyfjar sem í boði eru hafi ekki orðið enn meiri!

Jón Helgi Egilsson hefur allt aðra sýn á hlutina. Hvet menn eindregið til að lesa grein hans, Ellefu firrur um IceSave sér til fróðleiks. 

Gunnar Kristinn Þórðarson tíundar upplýsingar um eignasafnið margumtalaða í grein á eFréttum.is. Þær benda til að IceSave vandinn geti verið öllu meiri en af er látið.

Okkur er sagt af stjórnvöldum að það sé betri kostur að semja en kanna réttarstöðuna til þrautar. Um leið hvílir leynd yfir gögnum um eignasafnið og ýmis málsatvik sem skipta máli. Það er ekki traustvekjandi. Endurtek hvatninguna um að lesa um 11 firrurnar sem Jón Helgi tíundar.

 


mbl.is Skuldbindingin komin í 732 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er með ólíkindum að allt þurfi að vera hulið leyndarhjúp. Hvers vegna ? Ef við stöndum andspænis hótunum (um hvað veit ég ekki) er margfalt betra að opinbera þær og viti menn, það gæti brostið á með samhug í þjóðinni, sem þá stæði sameinuð gegn ofurvaldið breta, hollendinga og ekki síst ESB. Getur það verið skýringin á leyndarhjúpnum, að ekki megi styggja þjóðina gegn ESB. Þarf að þagga þetta niður, svo rétt niðurstaða fáist...að því gefnu að þjóðin, en ekki Alþingi, fái að kjósa um samningin.

Haraldur Baldursson, 11.6.2009 kl. 23:45

2 Smámynd: Jón Þór Helgason

Ástæðan fyrir feluleiknum er að sá sem er með betri samningsstöðu er búinn að koma ár sinni svo vel fyrir borð að hann skammast sín fyrir það. Og notar til þess meðöl sem er ekki sanngjörn.   Og Pólitískt er það ljótt!

 Ekki flókið.

 kv.

Jón Þór

Jón Þór Helgason, 12.6.2009 kl. 14:10

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Sælir og takk fyrir innlitið og athugasemdirnar.

Lögfræðingarnir Stefán Már Stefánsson og Lárus Blöndal eiga áhugavert innlegg í umræðuna í Moggagrein í dag. Hana má sjá hér.

Svavar Gestsson sagði að samningurinn hafi legið fyrir um miðjan apríl, vel fyrir kosningar, en verið flókið að skýra hann. Ef það tók 10 vikur að ná fram sameiginlegum skilningi samningamanna Íslands, Bretlands og Hollands, hvernig eiga þá þingmenn að geta myndað sér skoðun á einni viku? Og svo greitt atkvæði sem er bindandi til framtíðar fyrir þjóðina alla! Þeir fá ekki einu sinni sömu upplýsingar og samninganefndirnar. Það er eitthvað mikið bogið við þetta.


Það er spurning hvort Jóhanna Sigurðardóttir sé farin að búa sig undir það í huganum að e.t.v. verði IceSave fellt. Á Eyjunni svarar hún m.a.:

Það væri óhjákvæmilega komin upp ný staða ef samningurinn yrði felldur, en það er það bara staða sem við myndum taka á þegar þar að kæmi

Haraldur Hansson, 12.6.2009 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband