13.10.2011 | 18:19
Evrusvaðið
Ekki furða að Norðmenn vilji ekki líta við evrunni. Í þessari stuttu frétt koma fram fjölmargir punktar sem hver um sig jafngildir falleinkunn. Nokkrir þeir helstu eru þessir:
- Dvínandi trú á að evrusvæðið lifi af í núverandi mynd
- Nokkur evruríki ná ekki að greiða skuldir sínar
- Evrópski Seðlabankinn er ekki líklegur til stórræðanna
- Leiðtogar finna ekki lausn á skuldavanda evrusvæðisins
- Almenningur vill ekki auka fullveldisafsal ríkjanna
- Versta efnahagkreppan síðan í Kreppunni miklu
- Greiðslufall Grikklands er óhjákvæmilegt
- Enginn lánveitandi til þrautarvara
Enn er til fólk sem trúir að í því felist einhver efnahagsleg bjargráð að ganga í ESB og einangra Ísland bak við tollamúra á einu lélegasta hagvaxtarsvæði í heimi.
Og taka upp evru!
Förum að dæmi Norðmanna, stöndum utan Evrópusambandsins og lítum ekki við evrunni.
Feginn að hafa ekki evru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, ekki er það fagurt útlitið á þvi svæði sem Jóhanna telur algert æði að ýta okkur inn í.
Jón Valur Jensson, 13.10.2011 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.