Donald og Donald ræða málin

Strax eftir að úrslitin lágu fyrir bárust Donald Trump fundarboð frá ráðamönnum víða um heim. Það fyrsta kom frá Brussel, þótt þar (og víðar) hefðu menn viljað sjá aðra niðurstöðu. En úrslitunum verður ekki breytt.

Eftir lýðræðislegar kosningar í öllum 50 fylkjum Bandaríkjanna, þar sem 125 milljónir manna greiddu atkvæði, er Donald Trump rétt kjörinn forseti Bandaríkjanna.

Eftir engar kosningar í öllum 28 ríkjum Evrópusambandsins, þar sem enginn fékk að greiða atkvæði, er Donald Tusk orðinn forseti Evrópusambandsins.

Það væri fróðlegt að heyra samtalið þegar Donald og Donald ræða málin.

Í Bandaríkjunum veit hvert einasta mannsbarn hver Donald Trump er, fyrir hvað hann stendur og hvað hann vill gera. Gott eða slæmt. Heimsbyggðin veit það líka.

Í ESB-ríkjunum veit ekki nokkur maður hver Donald Tusk er eða fyrir hvað hann stendur. Heimsbyggðin hefur ekki hugmynd. Hann tók við af Herman Van Rompuy, sem enginn kaus eða þekkir heldur.


Versti óvinur elítunnar í Brussel er hinn hættulegi "vilji almennings". Hún mun áfram sniðganga lýðræðið, að vel athuguðu máli, svo múgurinn fari sér ekki að voða og kjósi einhvern Donald til valda.

 


VARÚÐ: Hættuleg skepna í framboði

Stundum grípa menn til hræðsluáróðurs og þá helst þeir sem hafa vondan málstað að verja. Fyrir fimm árum var sett nýtt met í lágkúru í þeim efnum þegar Icesave hákarlinn var kynntur til sögunnar. Á bak við hann stóð Áfram hópurinn sem auglýsti grimmt og eyddi milljónum og aftur milljónum í að berjast gegn málstað Íslands.

icesave_hakarlOg nú er sjálfur Iceave hákarlinn kominn í framboð. Hann var settur í nýtt gervi og gengur undir dulnefninu "Viðreisn".

Að Icesave hákarlinum stóðu m.a. Benedikt Jóhannesson, Hanna Katrín Friðriksson og Dóra Sif Tynes, sem nú eru öll í framboði fyrir hákarlinn Viðreisn. Þeim þótti sanngjarnt verð fyrir farmiða til Brussel að dæma þjóðina til fátæktar í nokkrar áratugi. Þeirra stóri draumur er enn að koma Íslandi inn í Evrópusambandið.

Hákarlinn reynir að telja kjósendum trú um að Málið eina sé ekki eina málið. Beina athyglinni frá því með vaxtalækkun, launajafnrétti og öðru sem gagnast í atkvæðaveiðum. Og auðvitað myntráð (sem er reyndar búið að prófa og virkar ekki). Bara ekki beina kastljósinu að esb þráhyggjunni.

  • Fyrir fimm árum börðust þau gegn þjóðinni og nú segjast þau ætla að vinna fyrir hana. Á ég að treysta því? Nei takk.
  • Fyrir fimm árum höfðu þau rangt fyrir sér og það benda engin skynsamleg rök til annars en að þau hafi kolrangt fyrir sér núna líka.

Þarna er enn sama fólkið með sömu hættulegu hugmyndirnar um brusselska sæluríkið. Það þarf heldur betur að biðja Guð að blessa Ísland ef hákarlinn kemst til áhrifa.


Hvers vegna "C"?
Eitt af því sem einkennir fólk með esb þráhyggju er að það hefur enga trú á að íslenska þjóðin geti sem best ráðið sínum málum sjálf. Hún þurfi brusselskar hækjur. Það er eitthvað svo táknrænt fyrir vantrú Viðreisnar á þjóðinni að velja listabókstafinn C, sem er ekki notaður í íslensku.


(MYND: Viðreisn æfir kafsund, án dulargervis.)
 

 


Þegar Össur fór norður og niður

Frá kosningunum 2009 hefur Össur Skarphéðinsson verið fyrsti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður. Hann færði sig yfir Miklubraut fyrir kosningarnar á laugardaginn og nú verður hann fjórði þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Hann fór því bókstaflega norður og niður.

Það er skemmtilega táknrænt fyrir þann dóm sem hæstvirtir kjósendur felldu yfir esb-þráhyggju Samfylkingarinnar. Allt síðasta kjörtímabil hefur Össur starfað sem sérlegur áróðursfulltrúi Brusselveldisins, þótt hann hafi þegið laun sem utanríkisráðherra Íslands.

Nú hafa kjósendur sent hann og Samfylkinguna alla í frí. Það er þreyttasti þingflokkur landsins, sá eini þar sem engin endurnýjun varð. Bara sama gamla þreytta liðið. Þau verða að fara að vilja kjósenda og sitja saman í skammarkróknum næstu fjögur árin. Og lengur, ef þau láta ekki af þráhyggjunni.
 


Kjósendur slátruðu ESB trúboðinu

Nú stendur XS undir nafni og er orðin Extra Small. Þegar ljóst var að Samfylkingin myndi setja nýtt Evrópumet í fylgistapi var talað um hamfarir og slátrun í sjónvarpssal. Báðar þær nafngiftir komu frá samfylkingarfólki. 

Ánægjulegasta niðurstaðan úr kosningunum er að kjósendur slátruðu ESB trúboðinu. Það er við hæfi að eini flokkurinn sem keyrði sína baráttu á ESB-aðild skyldi setja hið vafasama Evrópumet.


mbl.is Stjórnarflokkarnir tapa tæpum 28%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að standa undir nafni - eða skammstöfun

Því miður virðist ekki alveg nægur tími til að koma fylgi Bjartrar framtíðar undir 5% fyrir kjördag. Hún mældist með 19% fylgi í janúar, en getur þakkað það töfum á þinglokum að kosningabaráttan er of stutt til að náist að þurrka þau út í tæka tíð.

Stærsta stefnumálið er að tryggja tveimur Samfylkingarmönnum þægilega innivinnu og að hlaupa á eftir móðurflokknum í Málinu eina. Þetta innantóma naflaframboð, sem hefur hvorki stefnu né skoðun á neinu sem skiptir máli, mun ekki tryggja neinum bjarta framtíð.

Fari fylgið undir 5% myndu þau þó standa undir skammstöfun. Framboðið notar skammstöfunina BF í merki sínu. Ef skammstöfunin BF er stimpluð á niðursuðudós eða tómatsósuflösku þýðir hún „Best fyrir" sem táknar síðasta neysludag.

Björt framtíð er álíka skaðlaus fyrir kjördag og hún yrði gagnslaust eftir kosningar. Stimpillinn BF 27.04.2013 myndi smellpassa ef þetta naflaframboð missir nóg fylgi til að koma ekki inn manni. Það er ennþá smá von.

 
Þegar maður veit ekki enn hvað skal kjósa er ágætt að nota útilokunaraðferðina. BF er eitt af þeim framboðum sem ég er búinn að útiloka, en 14 listar eru í boði í mínu kjördæmi.
 


Engar skoðanir kannaðar

Í síðustu vinnuviku voru birtar niðurstöður úr fimm skoðanakönnunum á fimm dögum um fylgi flokkanna í komandi kosningum. Nú eru fjórir dagar til kosninga og engar fréttir af fylgiskönnunum í fjóra daga. Fékk einhver kaupandi svo slæma niðurstöðu að hann...

Þannig stjórna jafnaðarmenn

Samfylkingin á besta slagorðið í þessari kosningabaráttu. "Þannig stjórna jafnaðarmenn" er einfalt og grípandi með beina vísun í hið nýlengda nafn flokksins og í fortíðina. Samfylkingin á líka bestu auglýsingarnar. Það er sterk og ákveðin lína í öllum...

Össur afskrifar ESB

Eitt af því sem ríki gefa frá sér við inngöngu í Evrópusambandið er rétturinn til að gera fríverslunarsamninga. Og ekki nóg með það, þeir samningar sem ríkið kann að hafa gert falla sjálfkrafa úr gildi við aðild. Össur veit að það væri ekki til neins að...

Viðbrögð hinna tapsáru

Ólafur Ragnar hlaut einungis stuðning 35% atkvæðabærra manna í landinu, er haft eftir Ólínu Þorvarðardóttur í viðtengdri frétt. Hún telur það ekki sannfærandi og líkir því við að fá gula spjaldið. Þetta eru viðbrögð ýmissa andastæðinga ÓRG, sem að mestu...

Gamaldags þrætustjórnmál eru algjör lífsnauðsyn

"Gamandags þrætustjórnmál skila okkur engu" sagði frambjóðandinn og leggur til að við sameinumst og vinnum öll í sátt. Auðvitað hljómar þetta þægilega, því allir vilja sátt. En það er nú bara þannig að daginn sem "gamaldags þrætustjórnmálum" verður...

Að auglýsa frá sér fylgið

Í könnun Félagsvísindastofnunar í apríl var Þóra Arnórsdóttir með afgerandi forystu. Hún var þá með 49% stuðning en Ólafur Ragnar 35%. Núna, tveimur mánuðum og óteljandi auglýsingum síðar, hefur þetta snúist við og Ólafur Ragnar kominn með afgerandi...

Hræðsluáróður ... sögðu þeir

Fyrst eftir hrun var afgerandi stuðningur við umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Það var skiljanlegt að fólk vildi leita lausna eftir svo mikið áfall. Finna leiðir. Bara eitthvað. Það voru viðbrögð við áfallinu. Eftir því sem sjálfstraust þjóðarinnar...

Forsetafrúin Glanni glæpur

Þegar fyrstu vangaveltur birtust um hugsanlega frambjóðendur til forseta var leikkonan Steinunn Ólína nefnd. Það fannst mér flott hugmynd, þó ekki væri nema fyrir það að þá yrði Glanni glæpur forsetafrú. Þrátt fyrir nafnið er Glanni enginn glæpon. Hann...

Þetta er viðvörun. Lokaviðvörun!

Viðtengd frétt er um að Ísland hafi fengið lokaviðvörun. Við hverju er varað? Hvað skal gera? Það er eftirlitsstofnun EFTA sem sem sendir okkur þessa viðvörun ... ... vegna innleiðingar tilskipunar um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja með tilliti...

Ef Ólafur Ragnar væri ekki í framboði ...

Ef Ólafur Ragnar Grímsson hefði ákveðið að bjóða sig ekki fram til endurkjörs væri Þóra Arnórsdóttir ekki í framboði heldur . Það kemur æ betur í ljós að framboð hennar er mótframboð - og mótframboð eingöngu. Hin fjögur hefðu trúlega boðið sig fram og...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband