Hvar á ég að sitja?

Hvar á ég að sitja? spyr konan með kórónuna. Myndin segir meira en þúsund orð. Þeirrar bláklæddu bíður uppbúið rúm og alls konar græjur, sem þarf til að halda lífi í mikið veikum sjúklingi.

evra_g20


Allir útlensku G20 vinir hennar eru mættir til að sýna henni stuðning á sjúkrabeði, en batahorfur eru því miður slæmar.


Another one bites the dust

Á meðan Spánverjar fagna gjaldþroti sínu og uppgjöf naga evrópskir ráðherrar neglurnar af ótta við lýðræðið í Grikklandi. Á brusselsku heitir það að vera í viðbragðsstöðu. Nú hafa Spánverjar hlotið "sigurlaun" við hæfi. 

"Another one bites the dust" voru upphafsorð ræðu á Evrópuþinginu í Strasbourg í gær. Þar var ekki verið að vitna í þekkt lag með hljómsveitinni Queen heldur fjalla um óleysanlegan vanda evrunnar, sem fer stigvaxandi. Þetta er evran sem felldi Spán um þrjár deildir og er nú með Ítalíu næst á matseðlinum.

Titanic-evran hefur rekist á ísjakann og því miður eru ekki til nógu margir björgunarbátar.

TEXTI ræðunnar er fyrir neðan myndbandið.
 


Another one bites the dust.

Country number four, Spain, gets bailed out and we all of course know that it won't be the last. Though I wondered over the weekend whether perhaps I was missing something, because when the Spanish prime minister Mr Rajoy got up, he said that this bailout shows what a success the eurozone has been.

And I thought, well, having listened to him over the previous couple of weeks telling us that there would not be a bailout, I got the feeling after all his twists and turns he's just about the most incompetent leader in the whole of Europe, and that's saying something, because there is pretty stiff competition.

Indeed, every single prediction of yours, Mr Barroso, has been wrong, and dear old Herman Van Rompuy, well he's done a runner hasn't he. Because the last time he was here, he told us we had turned the corner, that the euro crisis was over and he hasn't bothered to come back and see us.

I remember being here ten years ago, hearing the launch of the Lisbon Agenda. We were told that with the euro, by 2010 we would have full employment and indeed that Europe would be the competitive and dynamic powerhouse of the world.By any objective criteria the Euro has failed, and in fact there is a looming, impending disaster.

You know, this deal makes things worse not better. A hundred billion [euro] is put up for the Spanish banking system, and 20 per cent of that money has to come from Italy. And under the deal the Italians have to lend to the Spanish banks at 3 per cent but to get that money they have to borrow on the markets at 7 per cent. It's genius isn't it. It really is brilliant.

So what we are doing with this package is we are actually driving countries like Italy towards needing to be bailed out themselves.

In addition to that, we put a further 10 per cent on Spanish national debt and I tell you, any banking analyst will tell you, 100 billion does not solve the Spanish banking problem, it would need to be more like 400 billion.

And with Greece teetering on the edge of Euro withdrawal, the real elephant in the room isthat once Greece leaves, the ECB, the European Central Bank is bust. It's gone.

It has 444 billion euros worth of exposure to the bailed-out countries and to rectify that you'll need to have a cash call from Ireland, Spain, Portugal, Greece and Italy. You couldn't make it up could you!It is total and utter failure.

This ship, the euro Titanic has now hit the iceberg and sadly there simply aren't enough life boats.


mbl.is ESB-ráðherrar í viðbragðsstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnús Orri sagði satt. Alveg óvart.

Magnús Orri Schram er einn af mínum uppáhalds stjórnamálamönnum. Fyrir þá sem ekki eru fylgjandi því sem Samfylkingin stendur fyrir er hann jafnan öruggur liðsauki.

Í viðtali á Mbl-sjónvarpi sagði hann satt. Hvort það voru mismæli eða freudian slip veit ég ekki, en satt var það.

Í viðtalinu segir hann (á 19. sek.) pólitíska andstæðinga vilja koma í veg fyrir skoðanakönnun. Sem er rétt. Þessa skoðanakönnun Jóhönnu kalla ráðherrar "þjóðaratkvæðagreiðslu". Og hún er ekki um eitthvert smámál, heldur sjálfa stjórnarskrá lýðveldisins.

Okkar maður veit að þjóðaratkvæði ber að taka alvarlega og undirbúa að kostgæfni. Vanda til verka og bjóða skýra kosti. Sú sýndarmennska sem nú skal blásið til er ekki þess verð að kalla þjóðaratkvæðagreiðslu. Þess vegna kallar hann gjörninginn réttilega skoðanakönnun. Líklega óvart.


Með þessu skemmtilega innleggi nær hann þó ekki að jafna sinn besta árangur til þessa, sem var þegar hann brá sér í hlutverk Birtíngs. En þá var hann líka að rita blaðagrein um málið eina.


mbl.is Ljótur blettur á störfum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran 1991-2011

Maastricht, 9. desember 1991:
Lokið við nýjan sáttmála sem breytti Evrópubandalaginu í ESB. Hann var undirritaður tveimur mánuðum síðar og tók gildi 1. nóvember 1993 (eftir að Danir höfðu verið látnir kjósa aftur).

Með Maastricht sáttmálanum var lagður grunnurinn að nýjum sameiginlegum gjaldmiðli sem fékk nafnið Evra. Byrjað var að nota evruna sem bókhaldsmynt árið 1999 en árið 2002 voru seðlar og mynt sett í umferð.

Brussel, 9. desember 2011:
Nákvæmlega tuttugu árum eftir fundinn í Maastricht, var loksins formlega viðurkennt að evran er búin að vera. Samt er ætlunin að halda áfram að nota evruna, en á nýjum forsendum. Evra 2.0 byggist á því að svipta notendur fullveldi í efnahagsmálum og fjarstýra þeim frá Brussel.
  

Hvað um Írland?

Þegar Írar felldu Lissabon sáttmálann voru þeir látnir kjósa aftur, eins og venjan er í ESB. Þá var gerð "stjórnmálasamþykkt" og þeim m.a. lofað sjálfræði í skattlagningu atvinnufyrirtækja. Írum er mikið í mun að halda sínum lága 12,5% tekjuskatti á fyrirtæki, enda hafa mörg erlend félög sett upp starfsemi þar vegna þess.

Ein hugmyndanna í bréfi Merkozys vekur spurningar.

          "Convergence and harmonization of corporate tax base ..." 

Leiði þetta líka til samræmingar á skatthlutfalli þýðir það að svíkja þarf loforðið sem Írum var gefið haustið 2009. Það er bærilegur árangur á mælikvarða ESB að það taki meira en tvö ár að svíkja afgangsstærð eins og Írland, sem telur aðeins 4,6 milljónir íbúa.

Fái Írar að kjósa um slíkar breytingarnar, munu þeir trúlega fella þær í þjóðaratkvæði. Þá verða þeir látnir kjósa aftur eins og þeir voru látnir gera 2002 (Nice) og aftur 2009 (Lissabon). Dugi það ekki verður hræðusláróðurinn settur í Icesave-gír og þeir látnir kjósa í þriðja sinn. Brussel lætur ekki smáþjóð stoppa sig í að "bjarga evrunni". 


Nýja járntjaldið heitir Evra

Nýjasti bræðingur Merkozys dugir engan veginn til að leysa evruvandann, segir Christine Lagarde framkvæmdastjóri AGS. Meira þarf að koma til svo taka megi almennilega á vandanum og endurheimta traust. 

euro_timebomb"Lausnin" sem nú er unnið að er að svipta 17 ríki Evrulands efnahagslegu fullveldi með breytingum á sáttmálum ESB, helst án þess að bera það undir almenning.

Evran verður hið nýja járntjald. Handan þess verður þjóðum fjarstýrt frá Brussel og lýðræðinu hent í ruslið. Það er þegar búið að dæma lýðræðið í 10 ára útlegð í Grikklandi og þjóðina í esb-fangelsi.

-----

Í samtali á RÚV upplýsti Össur Skarphéðinsson að hann hefði "aðeins eina framtíðarsýn", sem er innganga Íslands í ESB. Á óvissutímum er hættulegt að hafa ráðamenn sem sjá einn og aðeins einn kost.


mbl.is Sachs: Stofnanir Evrópu virka ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

740 milljónir fyrir sjónvarp

Fyrir þremur árum var sett á stofn ný sjónvarpsstöð. Þó aðeins sé um að ræða vef-sjónvarp er kostnaðurinn kominn í 4,7 milljarða króna. Europarl TV , var sett upp í þeim tilgangi að upplýsa þegna Evrópuríkisins um störf þingsins í Brussel. Að meðaltali...

TH€ €ND

SkyNews fjallaði í dag um viðtalið sem Telegraph átti við Jacques Delores, einn af aðalhöfundum evrunnar. Hann segir evruna hafa verið gallagrip frá upphafi. SkyNews ræddi líka við breska þingmanninn Bill Cash, sem var einn af leiðtogum hreyfingarinnar...

Hver voru þá talin galin?

Í einni setningu nær Angela Merkel að ramma inn ESB-umræðu undanfarinna missera á Íslandi. Þeir sem eru á móti ESB-aðild Íslands hafa varað við hinum hættulega pólitíska samruna. ESB mun breytast úr ríkjasambandi í sambandsríki. "Ever closer Union" er...

Já! Ísland – toppar vitleysuna

Félagsskapur sem heitir "Já! Ísland" er orðinn enn furðulegri en Evrópusamtökin. Nú keppast þeir við að toppa sjálfa sig í vitleysunni. Maður hlýtur að spyrja sig: Ef þeim finnst ESB svona æðislegt, hvers vegna dugir þeim ekki að segja satt ? Hvers vegna...

Þeim fækkar sem vilja skríða

Það væri stórt skref í átt að málefnalegri umræðu ef RÚV - sameign okkar allra - tæki sig til og útskýrði þann gífurlega mun sem er á ríkjasambandinu sem Ísland sótti um aðild að og sambandsríkinu sem Barroso og Rompuy boða í viðtengdri frétt. Það er...

Hvað eiga Jimi Hendrix og ESB sameiginlegt?

ESB-ríkin hafa sótt um inngöngu í The 27 Club . Þar eru fyrir Jimi Hendrix, Janis Joplin, Kurt Cobain, Amy Winehouse og fleiri. Það sem ESB á sameiginlegt með félagsmönnum er að þau dóu öll þegar þau voru orðin 27. Þrátt fyrir að hafa þegar jarðað...

Tæp 85% á móti ESB aðild

"Andstaðan við aðild að Evrópusambandinu hefur aldrei mælst meiri" eru upphafsorð fréttar á RÚV um skoðanakönnun í Noregi, þá sömu og fjallað er um í viðtengdri frétt. Sé aðeins litið til þeirra sem taka afstöðu eru 84,6% á móti aðild að ESB . Í frétt...

Féll í sautjánda sinn!

Það er alltaf ákveðin spenna í loftinu þegar European Court of Auditors leggur fram ársskýrslu sína, en það er eins konar ríkisendurskoðun Evrópusambandsins. Skýrsla fyrir rekstrarárið 2010 var gefin út í Luxembourg í dag. Til að gera langa sögu stutta...

The End of Money

Á fréttastöðinni SkyNews er fastur liður þar sem farið er yfir forsíðufréttir dagblaðanna með tveimur sérfræðingum. Í kvöld yfirskyggðu fréttir af evruvandanum allt. Óttinn við mikinn samdrátt, jafnvel hrun, er verulegur. Sérfræðingarnir voru sammála um...

Hræsni

Þótt Berlusconi sé bæði skrýtinn og spilltur er hann réttkjörinn leiðtogi á Ítalíu með lýðræðislegt umboð frá kjósendum. Vilji menn losna við hann á að gera það á ítölskum forsendum eftir leikreglum lýðræðisins. Það skiptir nefnilega miklu máli hvernig...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband