29.3.2012 | 22:27
Magnús Orri sagði satt. Alveg óvart.
Magnús Orri Schram er einn af mínum uppáhalds stjórnamálamönnum. Fyrir þá sem ekki eru fylgjandi því sem Samfylkingin stendur fyrir er hann jafnan öruggur liðsauki.
Í viðtali á Mbl-sjónvarpi sagði hann satt. Hvort það voru mismæli eða freudian slip veit ég ekki, en satt var það.
Í viðtalinu segir hann (á 19. sek.) pólitíska andstæðinga vilja koma í veg fyrir skoðanakönnun. Sem er rétt. Þessa skoðanakönnun Jóhönnu kalla ráðherrar "þjóðaratkvæðagreiðslu". Og hún er ekki um eitthvert smámál, heldur sjálfa stjórnarskrá lýðveldisins.
Okkar maður veit að þjóðaratkvæði ber að taka alvarlega og undirbúa að kostgæfni. Vanda til verka og bjóða skýra kosti. Sú sýndarmennska sem nú skal blásið til er ekki þess verð að kalla þjóðaratkvæðagreiðslu. Þess vegna kallar hann gjörninginn réttilega skoðanakönnun. Líklega óvart.
Með þessu skemmtilega innleggi nær hann þó ekki að jafna sinn besta árangur til þessa, sem var þegar hann brá sér í hlutverk Birtíngs. En þá var hann líka að rita blaðagrein um málið eina.
|
Ljótur blettur á störfum Alþingis |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
10.12.2011 | 14:13
Evran 1991-2011
Maastricht, 9. desember 1991:
Lokið við nýjan sáttmála sem breytti Evrópubandalaginu í ESB. Hann var undirritaður tveimur mánuðum síðar og tók gildi 1. nóvember 1993 (eftir að Danir höfðu verið látnir kjósa aftur).
Með Maastricht sáttmálanum var lagður grunnurinn að nýjum sameiginlegum gjaldmiðli sem fékk nafnið Evra. Byrjað var að nota evruna sem bókhaldsmynt árið 1999 en árið 2002 voru seðlar og mynt sett í umferð.
Brussel, 9. desember 2011:
Nákvæmlega tuttugu árum eftir fundinn í Maastricht, var loksins formlega viðurkennt að evran er búin að vera. Samt er ætlunin að halda áfram að nota evruna, en á nýjum forsendum. Evra 2.0 byggist á því að svipta notendur fullveldi í efnahagsmálum og fjarstýra þeim frá Brussel.
Hvað um Írland?
Þegar Írar felldu Lissabon sáttmálann voru þeir látnir kjósa aftur, eins og venjan er í ESB. Þá var gerð "stjórnmálasamþykkt" og þeim m.a. lofað sjálfræði í skattlagningu atvinnufyrirtækja. Írum er mikið í mun að halda sínum lága 12,5% tekjuskatti á fyrirtæki, enda hafa mörg erlend félög sett upp starfsemi þar vegna þess.
Ein hugmyndanna í bréfi Merkozys vekur spurningar.
"Convergence and harmonization of corporate tax base ..."
Leiði þetta líka til samræmingar á skatthlutfalli þýðir það að svíkja þarf loforðið sem Írum var gefið haustið 2009. Það er bærilegur árangur á mælikvarða ESB að það taki meira en tvö ár að svíkja afgangsstærð eins og Írland, sem telur aðeins 4,6 milljónir íbúa.
Fái Írar að kjósa um slíkar breytingarnar, munu þeir trúlega fella þær í þjóðaratkvæði. Þá verða þeir látnir kjósa aftur eins og þeir voru látnir gera 2002 (Nice) og aftur 2009 (Lissabon). Dugi það ekki verður hræðusláróðurinn settur í Icesave-gír og þeir látnir kjósa í þriðja sinn. Brussel lætur ekki smáþjóð stoppa sig í að "bjarga evrunni".
7.12.2011 | 23:32
Nýja járntjaldið heitir Evra
Nýjasti bræðingur Merkozys dugir engan veginn til að leysa evruvandann, segir Christine Lagarde framkvæmdastjóri AGS. Meira þarf að koma til svo taka megi almennilega á vandanum og endurheimta traust.
"Lausnin" sem nú er unnið að er að svipta 17 ríki Evrulands efnahagslegu fullveldi með breytingum á sáttmálum ESB, helst án þess að bera það undir almenning.
Evran verður hið nýja járntjald. Handan þess verður þjóðum fjarstýrt frá Brussel og lýðræðinu hent í ruslið. Það er þegar búið að dæma lýðræðið í 10 ára útlegð í Grikklandi og þjóðina í esb-fangelsi.
-----
Í samtali á RÚV upplýsti Össur Skarphéðinsson að hann hefði "aðeins eina framtíðarsýn", sem er innganga Íslands í ESB. Á óvissutímum er hættulegt að hafa ráðamenn sem sjá einn og aðeins einn kost.
|
Sachs: Stofnanir Evrópu virka ekki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.12.2011 | 23:07
740 milljónir fyrir sjónvarp
Fyrir þremur árum var sett á stofn ný sjónvarpsstöð. Þó aðeins sé um að ræða vef-sjónvarp er kostnaðurinn kominn í 4,7 milljarða króna. Europarl TV, var sett upp í þeim tilgangi að upplýsa þegna Evrópuríkisins um störf þingsins í Brussel.
Að meðaltali horfa 830 manns á stöðina á dag, eða 0,00016% íbúa Evrópusambandsins. Áhorfendur eru heldur færri en íbúarnir á Hvolsvelli. Það þýðir að kostnaðurinn er orðinn um 5.780 þús. á hvern áhorfanda á þremur árum. Ef RÚV ætti að fá jafn hátt framlag á hvern áhorfanda væru það rúmir 600 milljarðar á ári, sem er talsvert meira en öll fjárlög íslenska ríkisins.
Höfuðstöðvarnar eru í Plymouth á Englandi og fá þýðendur nóg að gera. Efni er textað og þýtt á 22 tungumál, svo hver klukkutími í útsendingu kostar 9,5 milljónir króna. Hugsanlega rambar inn einn áhorfandi annan hvern dag sem þarf á maltneskum texta að halda, en nokkur hópur fólks vinnur við að þýða efni yfir á hvert tungumál.
ESB verður seint sakað um að fara vel með skattfé almennings.
Á sama tíma og ESB fagnar niðurskurði á Ítalíu verða 740 milljónir til viðbótar lagðar í reksturinn á Europarl TV á næsta ári, til að uppfræða 830 manns.
|
ESB fagnar niðurskurði á Ítalíu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
3.12.2011 | 17:56
TH€ €ND
SkyNews fjallaði í dag um viðtalið sem Telegraph átti við Jacques Delores, einn af aðalhöfundum evrunnar. Hann segir evruna hafa verið gallagrip frá upphafi.
SkyNews ræddi líka við breska þingmanninn Bill Cash, sem var einn af leiðtogum hreyfingarinnar sem barðist gegn upptöku evrunnar í Bretlandi á sínum tíma.
Bill Cash telur að aukin miðstýring innan ESB sé af hinu illa. Þær hugmyndir sem Merkel og Sarkozy vilja hrinda í framkvæmd muni aðeins skaða Evruland og gera illt verra fyrir alla Evrópu. Sérstaklega gagnrýnir hann ólýðræðislega tilburði Brusselvaldsins.
Hvorki Jacques Delors né Bill Cash hafa sótt námskeið Össurar í efnahagsmálum. Þeir vita um hvað þeir eru að tala.
|
Delors gagnrýnir evrusamstarf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
2.12.2011 | 12:50
Hver voru þá talin galin?
18.11.2011 | 01:23
Já! Ísland – toppar vitleysuna
17.11.2011 | 21:13
Þeim fækkar sem vilja skríða
15.11.2011 | 00:01
Hvað eiga Jimi Hendrix og ESB sameiginlegt?
11.11.2011 | 12:56
Tæp 85% á móti ESB aðild
10.11.2011 | 20:35
Féll í sautjánda sinn!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2011 | 00:46
The End of Money
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2011 | 12:55
Hræsni
6.11.2011 | 14:54
Spillingin á lögheimili í Brussel
4.11.2011 | 12:56
Féllu Grikkir á eigin bragði?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)




vefritid
agbjarn
prakkarinn
theodorn
aevark
kga
tilveran-i-esb
brjann
sigurjonth
karlol
snjolfur
gbo
hallurmagg
baldvinj
skessa
baldher
sveiflan
mitt
kreppukallinn
haukurn
kuriguri
jonvalurjensson
gun
zumann
duddi9
axelthor
islandsfengur
svavaralfred
vidhorf
marinogn
icekeiko
ksh
heimssyn
gattin
bjarnihardar
jonarni
thorsteinnhelgi
astromix
jonl
fun
haddi9001
morgunbladid
athena
skulablogg
bofs
kreppuvaktin
rafng
himmalingur
iceland
kreppan
postdoc
fullvalda
hvilberg
krist
bjarnimax
axelpetur
sillagunna
socialcredit
johannesthor
sporttv
valli57
morgunblogg
ingagm
helgi-sigmunds
don
omargeirsson
thjodarheidur
kuldaboli
geiragustsson
kristjan9
ammadagny
thruman
jonoskarss
mummij
minnhugur
samstada-thjodar