Hákarlarnir blómstra

Hrunið hefur kennt okkur að það þarf að setja skýrar reglur um rekstur banka og fjármálafyrirtækja. Þau atriði sem viðskiptaráðherra lýsir benda til að frumvörpin fjórtán séu til mikilla bóta. Að byggja eigi traustari grunn til framtíðar.

En það þarf líka að gera upp fortíðina.

Í grein sem Jóhannes Björn skrifar á vef sinn telur hann að nýlegur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sé slæmur fyrirboði um það sem koma skal. Og hann gefur bankastjórnendum ljóta einkunn. Í pistli Björns segir m.a.:

Sjálftökuliðið sem setti landið á hausinn stundaði aldrei eðlilega bankastarfsemi heldur sérhæfði sig í að tæma alla sjóði sem voru innan seilingar.

Forsprakkar einkabankanna lugu stanslaust um stöðu þeirra og engin greiningadeild spáði hruni krónunnar. Almenningur var ekki í neinni aðstöðu til þess að meta áhættuna. Köllum hlutina réttum nöfnum: Venjulegt fólk stundaði dagleg störf sín samviskusamlega og reyndi að byggja til frambúðar á meðan peningaelítan og pólitískar leikbrúður þeirra stigu trylltan dans á þilfari Titanic.

Grein sína kallar Björn "Hákarlarni blómstra" og hana má lesa hér.

Ég mæli eindregið með lestri greinarinnar. Hún er gott innlegg í umræðuna um breytingar á fjármálamarkaði og frumvörpin sem Gylfi Magnússon hefur lagt fram í þeim efnum.

 


mbl.is Koma í veg fyrir ofurlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jóhannes Björn er einn fárra sem sagði fyrir með vissu um bankahrunið löngu áður en það dundi yfir. Hann hefur margsannað að hans rödd er ekki undir áhrifum frá pólitískum loddurum og tækifærissinnum eins og hinn vesæli viðskiptaráðherra iceslave-stjórnarinnar.

Jóhannes Björn er þvert á móti stórmerkilegur og djúpvitur fræðimaður sem segir hlutina á mannamáli en ekki í einhverri gáfumannapakkningu.

Þórir Kristinsson (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 20:18

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Takk fyrir að hreyfa þessu stóra máli.

Jón Halldór Guðmundsson, 8.12.2009 kl. 22:16

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Þakka ykkur innlitið og athugasemdirnar.

Jóhannes Björn skrifaði áhugaverða grein 1. febrúar 2008 (hér), átta mánuðum fyrir hrun. Þar talaði hann um okurvexti o.fl. og sagði "þeir sem brosa yfir þessari tillögu ættu að lesa þessa grein aftur í september". Bankarnir féllu svo í september.

Ívar Pálsson gerði enn betur. Í byrjun mars 2007 skrifaði hann greinina "Fall Íslands", sem er forvitnilegt að lesa í dag (hér).

Þeir eru í hópi þeirra sem vöruðu við með góðum fyrirvara en gerðust ekki vitrir eftirá.

Haraldur Hansson, 9.12.2009 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband