Össur og ormagryfjan

... andstæðingar ESB hafa notað Icesave-deiluna til að halda því fram að Evrópusambandið hafi leynt og ljóst grafið undan Íslendingum. Það er hins vegar ómakleg ásökun og hefur margoft komið fram hjá forystu Evrópusambandsins að hún lítur á Icesave-deiluna sem algjörlega ótengda umsókninni um ESB 

Hvar hefur ráðherrann verið?

Ómakleg! Ótengd! ESB tók stöðu í málinu og er beinn gerandi í því. IceSave deilan hefur sýnt okkur aðeins undir grímuna sem Evrópusambandið ber. Tekið lokið af ormagryfjunni. Það sama gildir um tvö önnur ný dæmi.  

Annað þeirra eru viðbrögð Brussel við orðum Steingríms J Sigfússonar. Þau sýna að ESB hefur meiri áhuga á Íslandi vegna legu landsins en á hagsmunum þjóðarinnar sem landið byggir (sjá hér).

Hitt er framganga ESB á Írlandi 26. september, sem sýnir að sambandið vílar ekki fyrir sér að brjóta eigin lög og afbaka lýðræðið til að ná sínu fram (sjá hér).

ESB er ekki efnahagssamvinna heldur pólitískt valdabandalag þar sem lög og leikreglur eru látin víkja ef svo ber undir. Þótt krötum þyki óheppilegt að IceSave deilan afhjúpi sannleikann, þá verður hann að fá að koma fram. Þjóðarinnar vegna. Framtíðarinnar vegna.

 


mbl.is Ekki var við ugg í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Aldeilis rétt hjá þér Haraldur.

Hver ætli sé tilgangurinn hjá ESB, að koma sér upp sendiráði á Íslandi með fjölmennu starfsliði ? Um nærstu áramót munu þeir opna skrifstofu í Reykjavík með 12 manns, til að byrja með. Ætli þetta sé gert til að tryggja lýðræðislega meðferð málsins ? Eru þetta ekki afskipti óvinveitts erlends ríkis, af innanríkismálum þjóðarinnar ?

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.11.2009 kl. 09:14

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Við skulum stórvara okkur. Það fer hrollur um mig þegar ESB sinnar eru farnir að viðurkenna vanmátt sinn það ekkert annað en til að slæva okkur hin þar til þeir stökkva upp með öll tromp. Hér er í gangi undirróður á hæsta stigi en það er verið að berjast um völd og valdafíknin er sterkari en gróðafíkn manna og hún er sterk. 

Valdimar Samúelsson, 8.11.2009 kl. 14:02

3 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Aldeilis rétt hjá þér Haraldur. Við skulum stórvara okkur. Sendiráð ESB á Íslandi. Hér er í gangi undirróðu á háu stigi. Valdafíkn og gróðafíkn óvinveitts erlends ríkis. Undirróður á hæsta stigi. Og ég er ekki geðveikur bloggari með orðbragð ofsóknarbrjálæðingsins í hvert skifti sem ég opna munninn.

Gísli Ingvarsson, 8.11.2009 kl. 15:13

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Takk allir fyrir innlitið og athugasemdirnar.

Gísli; þöggun er óvinur lýðræðisins. Skoðana- og tjáningarfrelsi eru hornsteinar þess.

Það eru þrjú atriði í þessari færslu, öll rétt. Þar með talin ólögmæt afskipti af framgangi lýðræðisins á Írlandi. En sendiráð eru ekki nefnd í henni. Flettu upp orðinu "ofsóknarbrjálæði" í orðabók áður en þú notar það aftur.

Haraldur Hansson, 9.11.2009 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband