16.12.2008 | 12:07
Tæknileg mistök?
Það voru þá bara tæknileg mistök hjá Hæstarétti að dæma Tryggva í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Mér er slétt sama hvað Tryggvi gerir eða gerir ekki í Landsbankanum. Nú er staðan sú að útrásarruddarnir hafa sett Ísland á hliðina. Bæði Landsbankinn og Baugur eiga þar hlut að máli.
Það er ekki til að auka trúverðugleikann, eða trú nokkurs manns á nokkrum hlut, að sá sem hlaut þyngsta dóminn í Baugsmálinu skuli vera ráðinn til starfa hjá Landsbankanum. Að sýsla með fé.
Þetta er nokkuð sem Nýja Ísland þarf ekki á að halda.
Tryggvi: Kem ekki nálægt Baugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er svo komið að maður er hættur að trúa einu orði sem kemur út ú r kjaftinum á íslendingum. Íslendingar hafa alltaf verið óheiðarlegir og það kemur alltaf betur og betur í lós.
V.J. (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 12:20
Sammála þér Haraldur. Eru ekki til menn sem ekki hafa hlotið dóm og hvað þá fyrir fjármálaóreiðu til að vinna í bönkunum. Ég er viss um að það er fjöldi slíkra manna sem eru tilbúnir og geta vel unnið þessi störf hjá bönkunum.
BH
Björn (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 12:23
maður sem dregið hefur að sér fé á ólöglegan hátt og vinnur nú í banak ?
Jón Snæbjörnsson, 16.12.2008 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.