Fullkomin uppgjöf?

Útgerðin er ein af veigamestu undirstöðum okkar. Hún verður að vera arðbær. Að treysta á styrki er ávísun á hnignun.

Daginn sem íslensk útgerð byrjar að taka við erlendum styrkjum eru dagar hennar taldir. Þá verður aðeins tímaspursmál hvenær hún hættir að vera arðbær atvinnugrein, okkur öllum til tjóns.


Er þetta alvara eða andóf?

Það væri átakanlegt ef sveitungar mínir fyrir vestan meintu þetta í alvöru. Ég læt þá njóta vafans. Treysti á að tillagan sé aðeins táknrænt andóf.

Þeir vita hvaða hug sjávarútvegsráðherra ber til ESB og með þessu má ýta við honum til að knýja á um "betri skilning á málefnum landsbyggðarinnar" eins og þeir orða það. 

Ég neita að trúa að Samfylkingunni hafi tekist það ætlunarverk sitt, að skapa svo mikið vonleysi að fólk sjái það sem kost að skríða inn í ESB í fullkominni uppgjöf.

 


mbl.is Vilja ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Já þetta eru hugrakkir sjómenn - fara gegn fjöldanum og niðrandi skrifum.

Eyjólfur Sturlaugsson, 14.9.2011 kl. 18:49

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jón Valur Jensson, 15.9.2011 kl. 00:54

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Þakka ykkur innlitið piltar.

Hvort skyldi þurfa stærri skammt af hugrekki eða kjánaskap til að stefna á þann kost sem er verstur og verður á endanum dýrkeyptastur?

Það sem er "skondið" við styrkjahugmyndina er að hver einasta króna yrði sótt í vasa íslenskra skattgreiðenda. Peningarnir sendir til Brussel og fjallað um þá í stærstu nefnd sambandsins, sem telur 344 fulltrúa. Svo kæmu aurarnir til baka, með póststimpli frá Brussel og merkimiðann "Styrkur".

Fjárhæðin hefði bara rýrnað um fjórðung á ferðalaginu.

Haraldur Hansson, 15.9.2011 kl. 01:38

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Greinargóð lýsing á "styrks"-"ferlinu", Haraldur!

Jón Valur Jensson, 15.9.2011 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband