Spillingarfréttir á Sky

Á Sky News hafa í dag verið fluttar fréttir af ferð forsætisráðherra Bretlands til Brussel. Inngangur fréttarinnar vekur athygli, en þar er stjórnmálastétt Evrópuríkisin lýst sem embættismönnum úr öllum tengslum við evrópskan veruleika. Þar heimta menn meira fé frá aðildarríkjunum, sem standa í stórfelldum niðurskurði heimafyrir.

Sagt er frá mönnum sem valsa um sjóði af almannafé (the fabuled EU gravy train), þar sem lúxusbílar, dýrindis málsverðir og konfekt eru hluti af bjórlegnum busselskum lífsstíl. Einnig frá hroka sambandsins og ábyrgðarlausri meðferð á almannafé.  

Vonandi að RÚV fari að segja sannleikann á mannamáli eins og Sky. Ekki veitir af mótvægi við makalaus blaðaskrif utanríkisráðherra, sem birtir nú hverja greinina af annarri. Svo langt gengur hann í glansmyndagerðinni að jafnvel brusselskum embættismönnum ofbýður og reyna að leiðrétta vitleysuna.

Þegar ríkisstjórnin springur fær Össur örugglega vinnu á einni af áróðursskrifstofum ESB á Íslandi. Enda talar hann og skrifar nú þegar eins og áróðursmeistari Evrópuríkisins en ekki  sem utanríkisráðherra Íslands. Hann fengi ekki háa einkunn á Sky.

Hægt er að lesa frásögn Sky hér og horfa á fréttir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Haraldur.

Gott hjá þér að vekja athygli á þessari frétt SKY sem segir tæpitungulaust frá frá þessu yfirgengilega spillingarfeni- og greni  ESB elítunnar.

Svo hamast aðildarsinnar hér heima við að halda því að þjóðinni að við þurfum endilega að ganga í ESB til þess að forðast og minnka spillingu.

Staðreyndirnar og reynslan er allt önnur ESB Commízararnir og þeirra fylgifiskar í Brussel maka sífellt meira krókinn og sem aldrei fyrr og samdaun stjórnmálaelíta aðildar leppríkjanna í samstarfi við viðskipta- og embættiskerfið hefur komið sér upp fleiri og leynilegri matarholum til þess að misnota aðstöðu sína og völd. Einmitt af því að valdið er stöðugt fært fjær fólkinu og stofnanirnar stækka og flækjustigið og skilningur almennings á verkferlunum og lýðræðinu er í algjöru lágmarki.

Spillingardaunninn frá ESB valdaelítunni þar liggur eins og mara yfir Evrópu.

Ég finn vel og rækilega fyrir þessum fnik hér hér þar sem ég bý í ESB og Evruríkinu Spáni með 20% atvinnuleysi og allt í kalda koli og þvílíka og samgróna spillingu stjórnmála- og atvinnulífs í skjóli ESB.

Meira að segja lögreglan og dómsvaldið er gjörspillt og það vita allir !

Ég sæi vini mína reyna að múta lögreglunnni á Íslandi með 5000 kalli eða hærri upphæðum eins og er frekar reglan hér en undantekning hjá heimafólki. Útlendingar fá að visu flestir aðra meðferð nema þeir þekki einhvern sem þekkir einhvern annan sæmilega háttsettann.   

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 15:42

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

En Haraldur, hvernig í ósköpunum á Brussel að geta keypt þjóðir eins og Íslendinga (o.fl.) til lags við sig ef þeir hafa ekki nægilegt skotsilfur til að bjóða okkur út að borða?

Í það minnsta á meðan á tilhugalífinu stendur.

Ragnhildur Kolka, 29.10.2010 kl. 15:43

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Þakka innlitið og athugsemdirnar.

Það er ekki falleg mynd sem Gunnlaugur dregur upp af Spáni. En ef þið kíkið á fréttina sem vísað er á í færslunni þá voru skrifið 180 komment við hana. Myndin sem breskir lesendur gefa er síst skárri en sú spænska.

Það eru allir ósáttir við framgöngu ESB og stór hluti þeirra sem skrifa komment vill að Bretland losi sig úr Evrópuríkinu.

Haraldur Hansson, 31.10.2010 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband