26.5.2009 | 16:38
Landsbankinn fær sér togara
Munu bankarnir fara að frysta síld? Endar útgerð í ríkiseign? Ef banki eignast kvóta, verður hann þá innkallaður með fyrningarleið eins og kvóti útgerðarfélags?
Í upplýsingum um fyrningarleiðina, á vef Samfylkingarinnar, er að finna ýmsa athyglisverðu punkta. Hér eru nokkrir úr stefnuritinu Skal gert (bls. 58-59) sem varða kvóta sem kemst í eigu banka:
- Ætla má að við núverandi aðstæður geti fjöldi sjávarútvegsfyrirtækja orðið gjaldþrota og veðsettar aflaheimildir lent í eigu bankastofnana.
- Leita þarf leiða til að endurúthluta þeim aflaheimildum sem hverfa frá núverandi handhöfum með útboði ...
- Aflaheimildir séu ekki varanlegar heldur úthlutað til tiltekins tíma í senn og gegn gjaldi.
- Aðrar aflaheimildir þarf síðan að afskrifa á hæfilega löngum tíma, gegn niðurfellingu veiðigjalds, og endurúthluta með sama hætti.
Spurningar sem vakna eru t.d. þessar:
- Á að innkalla kvóta í bankaeign á 20 árum, um 5% á ári?
- Ef svo, er það þá með "fyrningarleið" án endurgjalds?
- Fengi bankinn þá leigugjaldið fyrir kvótann á fyrningartímanum?
- Myndi þá sama regla gilda um ríkisbanka og aðra banka?
- Þyrfti Landsbankinn e.t.v. að fá sér togara til að nýta verðmætin?
- Er hugsanlegt að það standist ekki lög að innkalla kvóta bankans án endurgjalds?
- Hvaða gjald myndi þá ríkið greiða bankanum á hvert kíló?
- Svo kemur stóra spurningin: Ef bankinn fengi greiðslu, er þá hægt að innkalla keyptan kvóta útgerðarmanns án þess að greiðsla komi í staðinn?
- Verður ekki sama regla að gilda um alla kvótaeigendur?
- Hvað ef bankinn er erlendur, hver er réttarstaðan?
Svo er allt önnur spurning í þessu dæmi hvort rétt sé að nýtt kvótakerfi komi í staðinn fyrir það gamla. Pólitísk úthlutun gegn veiðigjaldi. Það væri kannski ráð að líta til nágranna okkar í Færeyjum, en "færeyska fiskidagakerfið" hefur reynst þeim betur en kvótinn. Það er byggt á sóknarmarki.
Innleiðing á því yrði síður en svo flóknari en að skipta óréttlátu kvótakerfi út fyrir pólitískt. Kannski meira um það síðar, ef tilefni er til.
Síldarfrysting hafin á Vopnafirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
kvóti í bankaeign = banki í ríkiseign,ert þú að tala um að ríkið fari að leigja sjálfu sér? ég hélt að einsog staðan er í dag ætti ríkið orðið bankana og kvótinn er óvéfengjanlega þjóðareign svo um hvað er færslan.og ég er algjörlega sammála þér um færeysku leiðina.
zappa (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 17:08
Skuldir hverfa ekki þó ríkið eignist banka!
Það að banki sé í ríkiseign þýðir ekki að þá sé í lagi að veikja hann og rýra eignirnar með því að taka þær án endurgjalds. Þá væri freistandi fyrir útgerðina að hætta að borga, láta kvótann til bankans, skuldirnar hverfa og hægt að byrja með hreint borð. Það flækir líka dæmið að skuldir með verði í aflaheimildum eru ekki allar við íslenska banka í ríkiseign.
Haraldur Hansson, 26.5.2009 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.