19.11.2008 | 19:53
Bardaginn er hafinn: Geir vs Davíð - 1. lota
Eftir sjö vikna upphitun er hann loksins hafinn, bardaginn. Í aðdragandanum sýndu báðir keppendur íþróttamannslega framkomu: Það á ekki að reka neinn. Hver segir það? Við skulum ekki persónugera vandann. Ætlar þú að hætta?
Í gær var svo slegið í bjölluna á morgunverðarfundi og bardaginn er hafinn. Davíð átti fyrsta höggið - góður vinstri krókur: "þetta er ekki mér að kenna, ríkisstjórnin svaf á verðinum." Geir kom með mjög mjög óvænt svar, beina hægri: "man ekki eftir neinum ráðleggingum frá Seðlabankanum sem ekki var orðið við".
Davíð dáleiddi hálfan salinn með eitruðum stíl en Geir náði að stela lotunni undir lokin með yfirhandar hægri: "það var sko mín hugmynd að sameina seðlabankann og eftirlitið".
Það eru spennandi og skemmtilegir tímar framundan, en ég efast um að þessi bardagi fari í 12 lotur.
Athugasemdir
fimm lotur...... enda með stjórnarslitum eða Davíð fórnað með hörmulegum afleiðingum fyrir sjálfstökuflokkinn.
Ævar Rafn Kjartansson, 19.11.2008 kl. 21:50
hahahahaha......
Aldís Gunnarsdóttir, 20.11.2008 kl. 12:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.