29.3.2012 | 22:27
Magnús Orri sagði satt. Alveg óvart.
Magnús Orri Schram er einn af mínum uppáhalds stjórnamálamönnum. Fyrir þá sem ekki eru fylgjandi því sem Samfylkingin stendur fyrir er hann jafnan öruggur liðsauki.
Í viðtali á Mbl-sjónvarpi sagði hann satt. Hvort það voru mismæli eða freudian slip veit ég ekki, en satt var það.
Í viðtalinu segir hann (á 19. sek.) pólitíska andstæðinga vilja koma í veg fyrir skoðanakönnun. Sem er rétt. Þessa skoðanakönnun Jóhönnu kalla ráðherrar "þjóðaratkvæðagreiðslu". Og hún er ekki um eitthvert smámál, heldur sjálfa stjórnarskrá lýðveldisins.
Okkar maður veit að þjóðaratkvæði ber að taka alvarlega og undirbúa að kostgæfni. Vanda til verka og bjóða skýra kosti. Sú sýndarmennska sem nú skal blásið til er ekki þess verð að kalla þjóðaratkvæðagreiðslu. Þess vegna kallar hann gjörninginn réttilega skoðanakönnun. Líklega óvart.
Með þessu skemmtilega innleggi nær hann þó ekki að jafna sinn besta árangur til þessa, sem var þegar hann brá sér í hlutverk Birtíngs. En þá var hann líka að rita blaðagrein um málið eina.
Ljótur blettur á störfum Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það heyrðist í umræðum á Alþingi í kv0ld að þar er ekkert smámál á ferð.
Helga Kristjánsdóttir, 30.3.2012 kl. 00:06
Mér finnst eins og markmiðið í aðra röndina sé að gjaldfella þjóðaratkvæðagreiðslur í hugum fólks.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2012 kl. 00:10
Magnús Orri uppljóstraði líka einu sinni í RUV þegar þau í Samfylkingunni einu sinni ´máttu hafa skoðun´. Ætli það hafi ekki verið óvart?
Elle_, 5.4.2012 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.