Það er bannað að segja satt

Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hefur gert sig sekan um alvarleg mistök. Honum varð það á að segja satt, já meira að segja allan sannleikann, um aðlögunarferlið sem Samfylkingin setti í gang. 

Ráðherrann á að segja þjóðinni að "kaffispjallið í Brussel" séu bara könnunarviðræður til að "sjá hvað er í boði". Það eru réttu umbúðirnar - framleiddar í Stimplagerð Samfylkingarinnar - og jafn innantómar og Velferðarbrúin, Fyrningaleiðin, Skjaldborgin o.s.frv., o.s.frv.

Jón Bjarnason má ekki láta það þvælast fyrir sér þótt einhver Egill bloggari bendi á skjalfestan sannleikann frá kommissar í Brussel. Ef hann vill halda embættinu verður hann að skilja, að þegar Evrópusambandið ber á góma, er stranglega bannað segja fólki satt.


Nú verður Jón að bæta ráð sitt og fylgja handriti Steingríms: "Já, Jóhanna, ég skal samþykkja hvað sem er ef þú leyfir mér að sitja áfram í stólnum". Það myndi styrkja stöðu hans innan ríkisstjórnarinnar ef hann lýsti sig reiðubúinn til að svíkja kvaða kosningaloforð sem er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

I thinu tilviki er allt rett sem er gegn ESB.thetta eru ekki adlogunarvidraedur og thad hefur enginns synt nein daemi um adlogun ad ESB tengt thessu.

Egill A. (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 08:05

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ísland er enn ráðstjórnarríki. Í slíkum ríkjum er réttur sannleikans lítill. En það er hann líka í ESB, svo núverandi ríkisstjórn er á réttri braut?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.8.2010 kl. 08:43

3 Smámynd: Dingli

Til Jóns Bjarnasonar frá Jóku og Steina

Aldrei máttu segja satt

sama á hverju gengur

Lyga veldu vinstri hatt

vertu góður drengur.

Dingli, 26.8.2010 kl. 09:45

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Ég þakka innlitið og athugsemdirnar.

Alveg frá byrjun hefur aðför Samfylkingarinnar gegn þjóðinni einkennst af tvennu: Að sniðganga lýðræðið og að afbaka sannleikann.

Haraldur Hansson, 26.8.2010 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband