Björgunarskipið e/s Titanic

Þegar leki kom að m/s Þjóðarskútunni skiptist áhöfnin í tvö horn.

Hópur manna vill manna dælurnar, „ausa" skipið, halda vélunum gangandi og bjarga áhöfn og farmi með því að sigla fyrir eigin vélarafli í höfn. Þeir vitað að það er hægt, því mesti stormurinn er afstaðinn og sjólag batnandi.

Skipstjórinn og fylgismenn hans panikkuðu. Þeir eru úrræðalausir, treysta sér ekki til að ausa og vilja gefast upp. Senda út neyðarkall og fá stórt evrópskt skip til að bjarga áhöfninni og taka m/s Þjóðarskútuna í tog.

titanic

Á stóru evrópsku skipi er kapteinn Rehn við stýrið. Hann hefur boðið fram aðstoð.

Ítrekað.

„Kapteinn Rehn ætlar að bjarga okkur alveg gratís", lýgur skipstjórinn.

Sem stendur eru flestir úr áhöfninni á því að gefast upp á að bjarga sér með sæmd og fara um borð í e/s Titanic til að komast í örugga höfn. Meirihlutinn ræður.

 


mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. maí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband