4.5.2009 | 12:35
Nú er það svart í ESB, enn svartara!
Framkvæmdastjórn ESB sendi frá sér nýja spá um samdrátt í efnahag sem er meira en tvöfalt svartari en spá frá því í janúar. Tók það fjóra mánuði að átta sig? Samdrátturinn á evru-svæðinu verður ívið meiri en í Evrópusambandinu í heild. Það gerir auðvitað evran. Nú spá José Manuel Barroso og félagar í Brussel samdrætti á næsta ári líka, en ekki hagvexti eins og í janúar.
Atvinnuleysi mun aukast og verða 10,9%. Sé evru-svæðið tekið út verður það 11,5% í Evru-landi lok næsta árs. Það gerir auðvitað evran. Grikkland, Spánn og Írland eru nokkur fórnarlamba evrunnar og nú hefur Finnland bæst í hópinn. (Sjá hér, fjórðu fyrirsögn: The Euro was a mistake for Finland.)Á Íslandi skall kreppan á með hvelli á einni viku og afleiðingarnar komu í ljós á parti úr misseri. Í Evrópusambandinu gengur það hægar, kerfið hægir rólega á sér eins og risa-olíuskip eftir að hafa misst vélarafl. Það er lengi að stoppa. Og það verður líka mjög lengi að komast af stað aftur, meðan minni sjóför bruna framúr. Spá kommissara Barrosos sýnir að ESB skipið er að verða vélarvana.
Eitt getum við samt verið viss um. Samfylkingin heldur fast við að innganga í ESB sé góð "aðgerð í efnahagsmálum". Að eina von Íslands sé að taka þátt í hægfara hnignuninni. Hún kvikar ekki frá því að sækja um aðild og fara í aðildarviðræður.
Væri kannski nær sanni að tala um "uppgjafarviðræður"?
![]() |
Efnahagslægðin dýpri og lengri en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.5.2009 | 09:41
Velferðarbrúin er týnd
Vegna þessarar fréttar bendi ég á bloggfærslu sem Marinó G Njálsson skrifaði í gær, en fyrirsögn hennar er Áður glitti í löngutöng, en nú sést hún skýrt og greinilega. Þar segir m.a.:
Öll úrræði sem sett hafa verið fram snúast um að blóðmjólka almenning. Hvergi er króna gefin eftir. Mér er alveg nákvæmlega sama þó NBI, Íslandsbanki eða Nýja Kaupþing séu með aðra kennitölu en gömlu svikamyllubankarnir. Í mínum huga eru þetta sömu bankarnir og felldu hagkerfið. Þetta eru sömu bankarnir og stálu af almenningi í landinu. Þetta eru sömu bankarnir og bera ábyrgð á að krónan féll um 40-50% á 7 eða 8 mánuðum og að ársverðbólga síðasta árs var yfir 17%. Þetta eru sömu bankarnir, það er mergur málsins og þeir skulda okkur háar upphæðir vegna þessa athæfis. Almenningur í landinu skulda þessum bönkum ekki neitt!
Þetta er aðeins brot af magnaðri færslu Marinós, sem er öflugur talsmaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Ég mæli með að menn smelli hér og lesi færslu Marinós alla, enda vel skrifuð af manni sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á málinu.
Vek líka athygli á fjórðu athugasemd við færsluna, um velferðarbrú Samfylkingarinnar sem virðist annað hvort týnd eða aldrei hafa verið til. Nema í auglýsingum.
![]() |
Kikna undan skuldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)