14.1.2009 | 19:45
Stressborg og ESB listaverkið
Átta tonna listaverkið sem David Černý setti upp í Brussel er hvorki stærsti né dýrasti gjörningur Evrópuríkisins. Černý svindlaði og þarf nú að útskýra hvað varð af 65 milljónum króna sem átti að greiða til listamanna.
Það þarf hins vegar enginn að útskýra hvað varð um þær 78.500 milljónir sem fóru í að byggja þinghúsið í Strasbourg. Þetta glæsilega hús er notað í 4 daga á mánuði og er miklu stærri gjörningur en sá sem tékkneski listamðurinn" framdi.
Í hverjum mánuði pakka allir 785 þingmenn Evrópuþingsins skrifstofum sínum ofan í þar til gerða kassa. Þeir eru settir í trukka og keyrt með allt til Strassborgar. Þar er tekið upp úr kössunum og menn koma sér fyrir í Louise Weiss byggingunni og byrja að funda.
Menn funda þar í fjóra daga. Þá er öllu pakkað niður aftur, sett í trukka og keyrt aftur til Brussel. Þetta er gert í hverjum mánuði. Kostnaðurinn við þetta þingmannarallý er 17 milljarðar króna á ári, greitt af skattfé þegna Evrópuríkisins. Þess á milli stendur Louise Weiss byggingin eins og hver annar skúlptúr, fólki til yndisauka.
![]() |
ESB-listaverkið Entropa reyndist gabb |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2009 | 00:21
ÖRYGGI
Þetta gæti verið íslensk lýsing nema hvað fjöldinn er meiri. Nokkur hundruð ungmenni stofna til óeirða eftir friðsöm mótmæli 10.000 manna á götum Riga. Þeim fjölmennustu í 19 ár.
Mótmælendur krefjast þess að stjórnin segi af sér og fara fram á uppstokkun á flokkakerfinu. Riga eða Reykjavík, kröfurnar eru þær sömu.
ESB gefur okkur öryggi og stöðugleika", sagði Normunds Popens, fastafulltrúi Letta hjá ESB í viðtali sem birt var hér á mbl.is á laugardaginn. Lettar gengu í ESB 2004, eins og margar þjóðir A-Evrópu eftir hrun Sovétríkjanna
Lettland fær 30.000 milljónir evra að láni frá Evrópska fjárfestingabankanum, en gjaldmiðill landsins er tengdur evru. Þeir eru líka búnir að fá 7.500 milljónir evra frá IMF.
Hvorki evran né ESB geta varið Lettland fyrir kreppunni. Öryggið er greinilega ekki eins mikið og Popens vonaði. Aukinn samdráttur og vaxandi verðbólga, alveg eins og á Íslandi.
Fréttin með viðtalinu síðasta laugardag byrjar á uppörvandi setningum:
Ísland sem smæsta ríki ESB gæti augljóslega ekki haft mikil áhrif á stefnu Evrópusambandsins. Það er þó ekki þar með sagt að Ísland hefði engin áhrif."
![]() |
Óeirðir vegna kreppu í Riga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)