ESB: "The gutless nanny-state"

Þetta er of fyndið til að vera satt.

Evrópusambandið hefur gefið út reglur sem banna hættuleg barnaföt. Það er nauðsynlegt að setja reglur sem tryggja öryggi barna, t.d. um bílstóla og um smáhluti í leikföngum fyrir yngstu börnin. En öllu má nú ofgera.

Algengustu vöruflokkarnir þar sem finna má "hættulegar vörur", að mati kommissars neytendamála ESB, eru leikföng, raftæki, ökutæki og fatnaður. Til að bregðast við hættunni eru settar reglur um föt fyrir yngri en 7 ára. Þær gilda líka um lengd á reimum í fatnaði barna allt að 14 ára aldri.

Anorak

Þó hægt sé að hafa gaman af svona vitleysu er tilefni bloggfærslunnar það sem Declan Ganley skrifar um lögin á heimasíðu sinni. Ganley, og flokkur hans Libertas, er fylgjandi Evrópusambandinu þó hann berjist hart gegn spillingu innan þess og fyrir auknu lýðræði. Hann telur þessa lagasetningu sorglega einkennandi fyrir yfirvaldið í Brussel.

It's hard to know what to say. This is the front line of the battle against the bureaucrats, where common sense has no place, and risk is no longer seen as character developing, but something to be avoided at all costs.

Let's hope that the Libertas ideologi of promotion of small businesses and risk taking, to rebuild the damaged economies of Europe, will directly challenge the gutless nanny-state being built in Brussels.

Það er til hópur fólks sem vill gera Ísland að hluta af The gutless nanny-state! Og viðræður halda áfram.


mbl.is Viðræðum haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Næsta skref er vitanlega að ESB gefi leyfi út barnseignaleyfi til fólks. Við vitum jú að sumir ættu alls ekki að verða foreldrar og þurfum staðlað Evrópuforeldri sem kýs Samfylkinguna og ungar út samfylkingarbörnum.

Páll Vilhjálmsson, 29.4.2009 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband