Who the fuck is Sigmundur Davíð?

Nýlega var einhver Sigmundur Davíð kjörinn formaður í klúbbi úti í bæ. Núna er þessi formaður orðinn valdamesti maðurinn við myndun ríkisstjórnar. Hann hefur aldrei verið í pólitík, aldrei boðið sig fram og aldrei verið kosinn. Það hefur enginn valið hann til að gera neitt.

Hann er ekki á þingi fyrir flokk sem ætlar ekki að vera í ríkisstjórn og ekki í stjórnarandstöðu. Samt ræður hann ferðinni. Þessi maður, sem hefur ekki umboð til að gera neitt, getur ráðið miklu um næstu framtíð þjóðarinnar.

Hann ræður hvort mynduð verður rauðgræn stjórn.

Hann ræður hvenær kosið verður í vor.

Hann ræður hvort hvalir verði veiddir.

Hann ræður hvaða leið ný stjórn fer í efnahagsmálum.

Hann ræður hvort samin verði ný stjórnarskrá!

Hvað varð um lýðræðið?


Á Nýja Íslandi skal lýðræðið í hávegum haft. Virðing Alþingis skal endurreist. Stjórnmálamenn eiga að vera heiðarlegir og vinna í þágu þjóðarinnar. Þetta var greinilega óraunhæfur draumur. Í staðinn fáum við gamaldags sukk af sömu tegund og Framsókn bauð upp á í borgarstjórninni. Lýðræðið er afskræmt eina ferðina enn.

Það eru allir tilbúnir að selja sálu sína. Hún kostar einn stól. Meira að segja VG ljáir máls á "að liðka fyrir" því að draga Ísland inn í ESB. Mönnum er greinilega ekkert heilagt þegar pólitík og völd eru annars vegar.

Ég sé eftir að hafa staðið á Austurvelli alla þessa laugardaga.


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Einu sinni var ekki hægt að vera formaður Framsóknarflokksins nema að vera á þingi, nú er nóg að vera umboðslaus framagosi nýskriðinn úr skóla.

Það ætlar seint að rata til okkar þetta lýðræði sem við höfum svo oft lesið um.

Sigurður Ingi Jónsson, 30.1.2009 kl. 21:35

2 identicon

Við vitum náttúrulega að Sigmundur er ekkert "nýr" í Framsóknarflokknum.
Hann er handbendi gömlu valdanna - allt er eins og áður.

Berglind (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 22:30

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já þessi félagsskapur er minni en mæðrastyrksnefnd, en stjórnar landi voru...með spillingu!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 30.1.2009 kl. 23:26

4 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Var einmitt að spá í þetta... og hann ætlar víst að skoða öll frumvörp nýju stjórnarinnar til að leggja mat á hvort þeim skuli veitt 'brautargengi' Hann ber hreinlega höfuð og herðar yfir allt og alla á Alþingi, án þess að sitja þar sjálfur í umboði kjósenda...

Aðalheiður Ámundadóttir, 3.2.2009 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband