Dásamlega Joly

Eva Joly var himnasending. Hún gefur rannsóknum á meintum fjársvikamálum bankamanna trúverðugleika, enda virtur sérfræðingur á því sviði, sama hvað Ingvi Hrafn segir. Svo hefur hún verið góður talsmaður íslenskra hagsmuna í deilunni um Icesave.

Nú er hún hætt sem ráðgjafi sérstaks saksóknara og er þá frjálsari með að tjá sig um önnur mál en hún var ráðin til, ef hún kýs svo. Daginn sem hún hætti hjá Sérstökum talaði hún á blaðamannafundi með Björk um Magma málið. Rök hennar gegn sölunni virka sannfærandi.

Í Silfrinu í dag lýsti hún þeirri skoðun sinni að Ísland ætti að ganga í ESB. Rökin sem hún færði fyrir því voru hins vegar ekki sterk. Hún sagði að ef Ísland gengi í sambandið vonaði hún að Noregur fylgdi á eftir. Það er nöturlegt að heyra fólk tala um að nota Ísland sem verkfæri til að draga aðra þjóð i klúbbinn, sem þó er búin að hafna honum tvisvar.

Það voru þó villurnar í máli hennar sem voru verri. Það er rangt að Ísland taki upp allt regluverk ESB, ellefu málaflokkar eru alfarið á forræði Íslands, sem við myndum missa við inngöngu. Það er líka rangt að Ísland hafi ekkert um löggjöfina að segja. Á vettvangi EFTA og sameiginlegu EES nefndarinnar er hægt að koma að málum áður en þau verða að lögum. Auk þess verða reglugerðir ekki sjálfkrafa að lögum hér eins og í aðildarríkjum, heldur þarf lög frá Alþingi til.

Það má gagnrýna stjórnvöld, bæði norsk og íslensk, fyrir að nýta ekki þessi verkfæri sem skyldi, en þau eru til staðar. 

Eva Joly er sérfærðingur á sviði efnahagsglæpa og nýtur verðskuldaðrar virðingar sem slík. En það gerir hana ekki að óskeikulum spámanni sem getur upplýst okkur um Sannleikann í öllum málum, eins og sást í Silfrinu í dag.

Að lokum tek ég undir þessa athugasemd Kolbrúnar.

 


mbl.is Eva Joly: Ísland á að ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Það hefði gefið henni vægi ef eitthvað örlaði á kærum - eða því fé sem búð var að stinga undan.

Ég hef kanski bara ekki tekið eftir árangrinum.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 17.10.2010 kl. 16:39

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Haraldur,  engin er fullkomin.

Aðalsteinn Agnarsson, 17.10.2010 kl. 17:25

3 Smámynd: Benedikta E

Góð grein hjá þér Haraldur - Ég hef verið Evu Joly mjög þakklát fyrir sitt framlag til "sérstaks" og ekkert séð eftir launum til hennar - þó sætir það furðu að árangur er nánast enginn - allt í líki snigilsins hjá "sérstökum".............Joly hefur ekkert með það að gera.............

En blessuð Eva hefði ekki átt að fara út í ESB umræðuna í Silfrinu - svo er nú silfrið löngu komið á tíma - gjörsamlega útbrunnið........................

Benedikta E, 17.10.2010 kl. 20:03

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Haraldur. Eva Joly er að mínu mati raunverulegur Íslandsvinur og veit meir en flestir um hvers konar spilling er i gangi! Eg velti fyrir mer hvað veldur að hún tjáir sig svona? Lesum a milli linanna! Hún veit meir en flest okkar! Er ekki umhugsunar-vert að hún skuli segja eitthvað svona? Hversu alvarleg er staða Íslands i raun?

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.10.2010 kl. 21:00

5 Smámynd: Haraldur Hansson

Þakka ykkur innlitið og athugasemdirnar.

Eva Joly hefur sagt það margoft að þetta taki tíma og við verðum að sýna þolinmæði. Þetta eru erfið og seinunnin mál og óþarfi að missa trú á rannsókninni þótt kærur séu ekki farnar að hrannast upp.

Anna Sigríður; ef Joly "veit meira en flest okkar" þá hefði hún annað hvort átt að upplýsa um það eða að sleppa því að lýsa skoðunum sem byggðar eru á upplýsingum sem ekki má nefna. Satt að segja held ég að hún sé það mikil fagmanneskja að hún hefði ekki farið að klikka á slíku og að þetta með ESB sé einfaldlega hennar pólitíska skoðun. Skoðun sem ég er aldeilis ekki sammála.

Haraldur Hansson, 18.10.2010 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband